Stærðfræði
Í Stærðfræðiskýringum Skólavefsins eru útskýrð helstu hugtök sem nemendur í efri bekkjum grunnskólans og fyrstu áföngum framhaldsskóla þurfa að glíma við. Eru hugtök og notkun þeirra útskýrð mjög vandlega í riti auk þess sem gagnvirk dæmi, myndbandskennsla og myndbandsdæmi fylgja hverjum kafla. Samblanda prents, myndbands og hljóðs nær virkilega til nemenda.

Kaflarnir eru alls um 80 talsins og í útprentanlegu formi telur efnið rúmlega 200 blaðsíður auk dæmasafna. Hér er því um sérlega veglegt efni að ræða. Dæmasöfn og prentútgáfur bætast við á næstu vikum og mánuðum þannig að það er vert að fylgjast vel með þessu efni.
Íslenska
Hér höfum við tekið saman Sýnisbók íslenskra bókmennta fram á upphaf 20. aldar þar sem er farið verður yfir ævi og verk tæplega 200 íslenskra höfunda og verkum þeirra fylgir upplestur, gagnvirk verkefni og margt fleira. Er hér um að ræða einstakt verk um íslenska bókmenntasögu.

Nú þegar eru komnir inn 20 höfundar og sífellt bætast nýjir við. Vandað æviágrip fylgir hverjum höfundi. Nokkur verk eru eftir hvern höfund svo hérna er í uppbyggingu merkisverk um íslenska rithöfunda. Fylgist með þegar höfundarnir bætast við hver af öðrum.
Í íslenskri málfræði bjóðum við upp á ítarlegar og vandaðar málfræðiskýringarnar í þægilegu uppflettiformi. Skýringarnar er hægt að skoða í myndbandsformi og fylgja þeim fjölbreyttar gagnvirkar æfingar og einnig verður hægt að nálgast þær í prentútgáfu.

Í prentinu verður boðið upp á þrjú hefti þar sem farið er yfir helstu hugtök og telja þau alls rúmlega 100 blaðsíður í útprentanlegu formi. N'u þegar eru komnar skýringar við fallorðin og bætast sagnorðin við innan skamms og síðan smáorðin. Þetta er mjög ítarlegt og skemmtilega fram sett verk í íslenskri málfræði.
Í stafsetningu bjóðum við eins og í málfræðinni upp á vandaðar og aðgengilegar skýringar í formi uppflettirits. Fjölmargar gagnvirkar æfingar auðvelda lærdóm í stafsetningunni sem er hér kennd á auðveldan og þægilegan hátt.
Í stafsetningu er boðið upp á 30 síðna regluhefti auk 40 æfinga. Í vefútgáfunni er upplestur og gagnvirkar æfingar og allt efnið verður útprentanlegt.
Lestrarbókin er frábær nýjung frá Skólavefnum. Lestrarbókin er frábærlega til þess fallin að bæta lesskilning nemanda. Í fyrsta lagi er um að ræða stigskipta texta sem hægt er að lesa beint af vefnum og vinna gagnvirkar æfingar með, þyngdarstigin eru fjögur og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi og er myndræn framsetning í alla staði glæsileg. Í öðru lagi er hægt að finna alla textana í prentbúningi með verkefnum og loks verður boðið upp á textana einungis sem hljóðskrá með verkefnum þar sem reynt er á hlustun og skilning

Lestrarbókin er nýstárlegt og umfram allt gagnlegt námsefni sem er sérhannað til þess að bæta lesskilning. Textarnir í Lestrarbókinni eru sérvaldir með tilliti til þess að þeir séu fræðandi og áhugaverðir þannig að nemendur æfi lesskilning og auki á gagnlega og sögulega þekkingu um leið.
Orðaþjálfi er einstakt forrit úr smiðju Skólavefsins sem sameinar notagildi og hönnun með frábærum hætti. Í því eiga nemendur að finna tiltekna tegund orða í texta. T.d. að finna 7 nafnorð í texta og er það gert með því að smella á viðkomandi orð.

Það sem gerir forritið svo magnað er að nemandinn getur sjálfur valið það hvaða atriði er þjálfað. Hann getur æft sig í að finna öll sagnorð í textabroti, eða öll fornöfn, eða öll nafnorð í þágufalli og svo framvegis og fær nemandinn samtímis endurgjöf um árangur. Forritið býður upp á gríðarlegan fjölda þjálfunarþátta og er í senn skemmtilegt og krefjandi. Nýjum verkefnum verður bætt við í hverjum mánuði.
Enska
Sýnisbók enskra bókmennta er veglegt verk frá Skólavefnum en í upphafi er boðið upp á 10 höfunda og munu fleiri bætast í hópinn innan skamms. Hverjum höfundi fylgir vandað æviágrip og síðan fjögur verk sem er stigskipt eftir þyngd. Textarnir eru settir fram á einfaldan og aðgengilegan hátt með orðskýringum, verkefnum og gagnvirkum æfingum. Allir textarnir eru upplesnir á vefnum og er lesturinn einkar vel heppnaður. Er hér um að ræða bæði léttari og flóknari texta eftir því hvað hentar hverju sinni.

Í byrjun verður boðið upp á um 40 höfunda og að meðaltali fjögur verk eftir hvern höfund þannig að sýnisbókin er afar veglegur leiðarvísir um enskar bókmenntir og verður bara glæsilegri þegar fleiri höfundum verður bætt við.
Skýringabanki í enskri málfræði með gagnvirkum æfingum. Tekur þessi banki til helstu málfræðiatriða sem nemendur á þessu stigi þurfa að glíma við. Síðast en ekki síst eru það skýringar og leiðbeiningar um enska stafsetningu auk fjölda gagnvirkra æfinga þar sem nemendur geta þjálfað sig í að rita ensku og séð hvar þeir þurfa að bæta sig.

Uppsetningin og efnistökin gera þetta að frábærri nýjung í enskukennslu á Íslandi. Í prentformi hefur Skólavefurinn nú þegar útbúið fyrsta heftið og munu fleiri fylgja í kjölfarið er líður að sumri. Er heftið 50 blaðsíður að lengd og hefur að geyma 38 stundir, en efninu er skipt í þægilegar þjálfunarstundir.
Skólavefurinn hefur gert samning við breska dagblaðið The Indepedent um að vinna með greinar sem þar er að finna og er boðið upp á valdar greinar sem hafa verið útbúnar til kennslu með margvíslegum hætti. Greinarnar eru valdar með tilliti til markhópsins og eru efnistökin sérstaklega til þess fallin að vekja áhuga nemenda. Að auki er greinunum skipt í tvo þyngdarstig sem tryggir að allir nemendur finni eitthvað við sitt hæfi.

Greinarnar verður hægt að nálgast upplesnar auk þess sem fjöldi verkefna og gagnvirkar æfingar fylgja. Nemendur og kennarar ættu að fylgjast vel með þessu efni sem bætir lesskilning og almenna enskukunnáttu. Munum við bæta við fleiri greinum og fleiri þyngdarstigum til þess að veita nemendum ögrandi viðfangsefni þannig að allir nái að auka færni sína.
Ensk myndbandakennsla er glæsilegt verk frá Skólavefnum þar sem nemendur horfa á viðtöl tekin við áhugavert og skemmtilegt fólk frá Bretlandi og er síðan prófað úr lesskilningi, hlustun og orðaforða jafnóðum eða eftir á. Öll myndvinnsla og viðtölin sjálf eru glæsilega úr garði gerð og hefur þetta efni nú þegar verið tekið í notkun við góðar undirtektir nemenda og kennara.

Fleiri myndböndum verður bætt við í þennan flokk enda hefur þetta námsefni slegið í gegn hjá þeim sem það nota. Hér er á ferðinni vandað námsefni sem bætir lesskilning og hlustun.
Danska
Í danskri málfræði er boðið upp á vandaðar málfræðiskýringar með góðum verkefnum. Skýringarnar eru aðgengilegar bæði í gagnvirku formi og til útprentunar þar sem um eiginlegt uppflettirit er að ræða. Vefútgáfunni fylgir urmull af skemmtilegum og krefjandi gagnvirkum æfingum.

Eins og í íslensku málfræðinni verður í dönskunni boðið upp á myndbandsskýringar til að auka á áhuga og móttækileika nemenda. Fylgist því með dönsku málfræðinni á næstunni.
Í bókmenntaþættinum eru þekktir danskir rithöfundar og verk þeirra kynnt fyrir nemendum. Meðal höfunda sem kynntir eru má nefna H.C. Andersen, N.F.S. Grundtvig og Steen Steensen Blicher. Finna má ítarleg æviágrip um hvern rithöfund og síðan eru valin verk í boði. Verkin eru upplesin með gagnvirkum æfingum á vefnum og einnig eru þau aðgengileg í sérstakri prentútgáfu með verkefnum.

Skólavefurinn mun bæta við fleiri höfundum er fram líða stundir og byggja þannig upp öfluga sýnisbók um danskar bókmenntir enda eru þær nátengdar íslenskri sögu og okkar eigin bókmenntasögu.
Skólavefurinn gerði m.a. samninga við Politiken og Nyhedsavisen í Danmörku um not á efni frá þeim og bjóðum við nú upp á blaðagreinar á dönsku með vönduðum verkefnum og upplestri. Þannig er með þessum greinum hægt að þjálfa lesskilning, hlustun og almennan skilning á dönskunni og dönsku þjóðfélagi. Textarnir eru stigskiptir til að auðvelda notkun nemenda og kennara.

Nú þegar bjóðum við upp á 16 blaðagreinar og mun fleiri bætast við mánaðarlega. Þetta er frábær viðbót í flóru námsefnis í dönsku.
Einnig verður boðið upp á skemmtilega sögu úr goðafræðinni, Rejsen til Utgårdsloki eftir Vilhjálm Gíslason dönskukennara. Sagan er í tólf köflum og telur hún með verkefnum í útrpentanlegu formi einar 95 blaðsíður. Sagan er myndskreytt frábærum myndum eftir breska listamanninn Daniel Cook og mun eflaust nýtast nemendum og kennurum mjög vel enda fylgir upplestur á sögunni, orðskýringar og gagnvirkar æfingar. Sagan er vel til þess fallin að espa upp áhuga nemenda á dönskunni sem stundum er ábótavant.

Þessi saga og framsetning hennar hefur vakið mikla lukku og mun Skólavefurinn innan skamms bjóða upp á fleiri sögur í þessari línu. Goðafræðin og danskan spinnast hér saman á skemmtilegan hátt og fanga hug nemenda.
|