Ég er kennari og mig langar að nota efni Skólavefsins, en skólinn sem ég kenni við er ekki áskrifandi. Má ég kaupa einstaklingsáskrift og nota efni vefsins við kennslu í skólanum?
Einungis er kennurum heimilt að nota efni Skólavefsins við kennslu ef skólinn er áskrifandi.
Má ég láta nemendur mína fá aðgangsorð að Skólavefnum til að þeir geti æft sig æfa heima hjá sér?
Óheimilt er að láta nemendur fá aðgangsorð skólans. Hægt er að festa þau inn á tölvur skólans, með því að haka í litla hvíta reitinn fyrir neðan þar sem aðgangsorðin eru slegin inn. Vilji nemendur hafa aðgang að Skólavefnum heima hjá sér geta þeir keypt einstaklingsáskrift á 1.290 kr á mánuði.
Ég er kennari og á krakka í grunnskóla. Má ég leyfa þeim að fara á aðgangsorði skólans til að æfa sig heima?
Kennurum er einungis leyfilegt að fara inn á aðgangsorði skólans heima hjá sér til að undirbúa sig fyrir kennslu. Vilji kennarar hafa aðgang fyrir börn sín að Skólavefnum verða þeir að kaupa heimilisáskrift á 1.290 kr á mánuði.
Skólinn minn sagði upp áskrift að Skólavefnum. Ég er búin að prenta út efni af Skólavefnum sem fyllir margar möppur. Má ég nota efnið áfram við kennslu?
Nei, það er óheimilt. Einungis má nota efni Skólavefsins við kennslu á meðan á áskrift stendur. Eftir að áskrift lýkur er ekki leyfilegt að leggja fyrir efni í kennslu sem fengið hefur verið af Skólavefnum hvort sem um útprentað efni er að ræða eða efni sem vistað hefur verið á stafrænt form.
Getur skólinn minn keypt áskrift að Skólavefnum hluta úr ári?
Nei, áskrift að Skólavefnum miðast við 12 mánuði á ári. Skólar geta hætt áskrift hvenær sem er ef þeim líkar ekki þjónustan, en eftir það mega þeir ekki nota það efni sem fengið hefur verið á Skólavefnum.
Í bæjarfélagi úti á landi eru tveir skólar og kenna margir kennarar við báða skólana. Einungis annar skólinn er áskrifandi. Mega kennarar prenta út efni í skólanum sem er áskrifandi og nota í hinum skólanum, þar sem þeir kenna við báða skólana?
Ef ekki er um sama skóla að ræða, þá er það óheimilt. Til að nota efni Skólavefsins í skóla, þarf viðkomandi skóli að vera áskrifandi.
Hvað kostar áskrift fyrir skóla að Skólavefnum?