Lesblindusetrið
í Mosfellsbæ
Lesblinda
Lesblinda (dyslexia) er samheiti einkenna sem eiga það fyrst og fremst sameiginlegt að trufla fólk við lestur. Á Lesblindusetrinu í Mosfellsbæ starfar hópur Davis leiðbeinenda og er þar boðið upp á einstaklingsnámskeið sem nefnd eru Davis leiðréttingar. Davis aðferðin hefur vakið mikla athygli og fengum við Kolbein Sigurjónsson Davis leiðbeinanda til að útskýrir aðferðina fyrir okkur.

Hver eru einkennin?
“Lesblinda birtist í fjölmörgum myndum og hamlar fólki einkum við lestur. Lesblindan hefur mörg andlit, en algengt er að nemendur spegli stafi, giski á orð eða jafnvel sleppi þeim alveg. Líkamleg einkenni eins og höfuðverkur og að geta ekki setið kyrr geta líka veriðáberandi.” segir Kolbeinn.
“Þar sem lesblindir einstaklingar eiga flestir auðvelt með að hugsa í myndum, búa þeir yfir hæfileika sem ekki er öllum gefinn. Á þessu byggjum við námskeiðin og því er svo mikið unnið með leirinn; þannig tekst okkur að breyta ímyndun í raunverulegan hlut með aðstoð sköpunargáfunnar. Þetta ferli er raunveruleg upplifun - lífsreynsla, sem ekki verður tekin af einstaklingnum. Við náum því að nota meðfæddan hæfileika til að snúa vörn í sókn ef svo má segja.”

Námskeiðin
Davis leiðrétting er einstaklingsnámskeið. Til að auka líkurnar á því að námskeiðið henti og skili árangri, fer ávallt fram viðtal þar sem mat er lagt á styrkleika og veikleika einstaklingsins.
Leiðréttingin sjálf tekur svo 5 virka daga, en síðasta daginn er stuðningsaðili (oftast mamma og/eða pabbi) þjálfuð svo hægt sé að vinna að eftirfylgninni heima.
Í yfirgnæfandi hluta tilvika næst sjánlegur og/eða mælanlegur árangur innan vikunnar. Það er því afar mikilvægt að fólk haldi áfram heima, svo hægt sé að byggja á þeim grunni sem skapaður hefur verið í leiðréttingunni.
Frekari upplýsingar má finna á vef Lesblindusetursins, www.lesblindusetrid.is |