Hvað kosta ég?

Fjármálafræðsla fyrir ungt fólk á mannamáli

Bók sem kynnir einföld fjármálahugtök með stuttum og hnitmiðuðum texta. Hún inniheldur fjölda verkefna og umræðuefna sem eiga að vekja áhuga unglinga á eigin fjármálum og fjármálakerfinu. Efni bókarinnar hentar mjög vel inn í lífsleikni en snertir einnig á stærðfræðinni. Frábært fjármálakennsluefni sem beðið hefur verið eftir.

Meðal annars er rætt um fjárræði, vexti, sparnað, samskipti við banka, FIT greiðslur, SMS lán, verðmæti, launaseðla og skatta.

Bókin er tilvalin til fjármálafræðslu í grunnskólum. Á vefnum www.fjarmalaskolinn.is er að finna mikið ítarefni og myndbönd sem styðja við kennsluna. Þar má einnig skoða fyrstu síður bókarinnar í gagnvirkri flettibók.

Verð: 1790.- kr.

Vanda málið

Nýtt heildstætt námsefni í íslensku fyrir miðstig

Vanda málið samanstendur af tveimur lesbókum og tveimur vinnubókum fyrir hvern árgang á miðstigi (5., 6. og 7. bekk). Bækurnar eru unnar út frá markmiðum Aðalnámskrár fyrir miðstigið og duga til alls íslenskunáms samkvæmt námskrá skólaárið á enda.

Höfundar eru Baldur Hafstað, Ingólfur Kristjánsson, Þórður Helgason og Sigurður Konráðsson og hafa bækurnar verið tilraunakenndar í þremur skólum í vetur.

Bókunum fylgir mikið aukaefni á vefnum: aukaverkefni (þyngri og léttari), upplestur, gagnvirkar æfingar, hugtakabankar, kennarabækur, lausnir, námsmat ofl.

Kynningarsíða fyrir Vanda málið - hér finnið þið allar upplýsingar um efnið.

Kíkið á kynningarsíðuna og skoðið þetta nýja metnaðarfulla námsefni. Hægt er að panta sýniseintök, fá kynningu fyrir kennara og við hvetjum alla til þess að skrá sig á fræðslufund okkar á námsgagnasýningu Námsgagna-stofnunar 17. ágúst, kl. 11.

 

Verð: 2980.- kr.

Ekki segja frá

- Lífsleikni

það er bókin Ekki segja frá og hentar hún einnig einkar vel í lífsleiknitíma. Í bókinni er á nærfærinn og skilvirkan hátt tekið á böli því sem alkóhólismi getur haft í för með sér. Arnheiður hefur útbúið gott vinnuhefti með bókinni sem hægt er að prenta út af Skólavefnum. Má segja að efnið henti vel frá 4. bekk og upp úr. Bókina er hægt að panta hjá Skólavefnum og síðan geta menn prentað vinnuheftið út af vefnum. Höfundur bókarinnar, Arnheiður Borg, hlaut íslensku menntaverðlaunin árið 2008 m.a. fyrir útgáfu bóka um lífsgildin og mannleg samskipti.

Bókin er einnig fallega myndskreytt. Bókina er hægt að panta hjá Skólavefnum og síðan geta menn prentað vinnuheftið út af vefnum. Og eins og alltaf bjóðum við upp á vinnuhefti með bókinni sem hægt er að prenta út af vefnum. Telur það 15 bls.

Vinnubók

Verð: 1590.- kr.
Verð: 1070.- kr.
30% lækkun!

Óboðnir gestir

- Lífsleikni

Það er okkur mikil ánægja að bjóða ykkur upp á nýja bók í bóksölu okkar hér á Skólavefnum. Nefnist hún Óboðnir gestir og er eftir Arnheiði Borg. Hefur sú bók hlotið töluverða athygli, bæði vegna þess hve skemmtileg hún er og einnig fyrir þau málefni sem bókin tekur fyrir. Bókin segir m.a. frá tröllabörnunum Græðgi, Fýlupúka, Óþekktarormi og Leti, auk jötuns sem ekki vill segja til nafns. Af nöfnunum má m.a. ráða hvað tekið er fyrir í bókinni. Er óhætt að segja að efnið á einkar vel við í dag.

Bókin hentar vel til kennslu í lífsleikni, en einnig má nota hana sem almenna lestrarbók ef því er að skipta. Höfundur bókarinnar, Arnheiður Borg, hlaut íslensku menntaverðlaunin árið 2008 m.a. fyrir útgáfu bóka um lífsgildin og mannleg samskipti. Bókin er einnig fallega myndskreytt. Bókina er hægt að panta hjá Skólavefnum og síðan geta menn prentað vinnuheftið út af vefnum. Og eins og alltaf bjóðum við upp á vinnuhefti með bókinni sem hægt er að prenta út af vefnum. Telur það 8 bls. Já hér er á ferðinni vandað og gott námsefni sem á erindi til allra barna.

Vinnubók

Verð: 1690.- kr.
Verð: 1180.- kr.
30% lækkun!

Þjófaland

- Bókmenntir

Nýlega hófum við á Skólavefnum samstarf við Hugin Þór Grétarsson um að dreifa bókum hans til skóla og útbúa við þær vinnubækur. Er það okkar staðfasta trú að sögur Hugins eigi mikið erindi í skólastofuna og ekki bara vegna þess hve skemmtilegar þær eru og fallega unnar. Að baki sögum Hugins býr líka frjótt ímyndunarafl sem tekur fyrir og rannsakar ýmislegt í samfélagi okkar mannanna sem vert er að gefa gaum að og gott að fá nemendur til að hugsa um.

Í sögunni Þjófaland er vikið að mörgum undirstöðum mannlegs lífs og boðið upp á umræðu um hugtök á borð við lýðræði, rétt, rangt, græðgi, nægjusemi og ótal margt fleira. Bókinni fylgir 16 síðna vinnubók sem hægt er að skoða með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Vinnubók

Verð: 1490.- kr.
(Verð 1190.- ef keyptar eru 10 bækur eða fleiri)

Nammigrísinn

- Bókmenntir

Nýlega hófum við á Skólavefnum samstarf við Hugin Þór Grétarsson um að dreifa bókum hans til skóla og útbúa við þær vinnubækur. Er það okkar staðfasta trú að sögur Hugins eigi mikið erindi í skólastofuna og ekki bara vegna þess hve skemmtilegar þær eru og fallega unnar. Að baki sögum Hugins býr líka frjótt ímyndunarafl sem tekur fyrir og rannsakar ýmislegt í samfélagi okkar mannanna sem vert er að gefa gaum að og gott að fá nemendur til að hugsa um.

Í sögunni Nammigrísinn víkur höfundur að óhófi, neysluhyggju og græðgi á athyglisverðan hátt. 14 blaðsíðna vinnubók fylgir bókinni og hægt er að skoða hana með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Vinnubók

Verð: 1490.- kr.
(Verð 1190.- ef keyptar eru 10 bækur eða fleiri)

Rutarbækurnar

- Léttlestrarbækur
- Lífsleikni

Rutarbækurnar eftir Arnheiði Borg kannast margir við en þær komu út á árunum 1992-1995 en hafa nú verið endurútgefnar og hægt er að kaupa þær hér á Skólavefnum. Bækurnar eru léttlestrarbækur en rauði þráðurinn í þeim öllum er umfjöllun um mannleg samskipti og koma þær sterkt inn í lífsleiknina.

 

Í bók 1 "Rut fer í nýjan skóla" er m.a. fjallað um: jákvæðni, að dæma ekki fyrirfram, oft má satt kyrrt liggja, tillitssemi

Í bók 2 "Rut á afmæli" er m.a. fjallað um: að skilja ekki útundan, að virða hvert annað, að særa ekki aðra, að kynna sig í síma, að tala rétt mál

Í bók 3 "Rut og Gunnar" er m.a. fjallað um: reiði, stríðni, fyrirgefningu, skemmdir á almenningseignum

Í bók 4 "Rut og raddirnar tvær" er m.a. fjallað um: þjófnað, hjálpsemi, samviskusemi, tillitsemi, einelti

Verð: 750.- kr. hver bók

Hlývindi - Ljóð og laust mál eftir Stephan G. Stephansson

- Bókmenntir

Bókin HLÝVINDI hefur að geyma ljóð og laust mál eftir Stephan G. Stephansson. Er það Baldur Hafstað, íslenskuprófessor við Menntavísindasvið HÍ, sem hefur veg og vanda af vinnslunni og hefur jafnframt skrifað frábærar skýringar með efninu til að auðvelda okkur að nálgast innihaldið á skilmerkilegan hátt.  Stephan G er og verður einn mesti hugsuður sem þjóð okkar hefur alið.  Hann var maður margra heima; ólst upp í afdölum norðanlands og fluttist til vesturheims í leit að betra lífi sér og sínum til handa.  Hann var óhræddur við að segja skoðun sína á málefnum líðandi stundar og gerði það oftast þannig að skoðanirnar lifðu málefnin. Eiga orð hans jafn mikið erindi til okkar í dag eins og þau áttu þá. Það hefur lengi skort að hægt væri að nálgast prósatexta Stephans í hentugri útgáfu, en nú höfum við ráðið bót á því. Hverjum ljóði og lausamálstexta fylgir innganngur þar sem Baldur fjallar stutt um viðkomandi texta og gerir það á svo ljósan hátt að textinn hreinlega lifnar við.

Hugmyndir Stephans G. eiga mikið erindi til námsmanna og því hefur Baldur útbúið vinnuhefti með völdum köflum í bókinni, annars vegar fyrir efstu bekki grunnskólans og hins vegar fyrir framhaldsskólanema.  Getur því verið hentugt fyrir skóla að verða sér úti um bekkjarsett af bókinni til að geta nýtt sér þessi verkefnahefti. Vinnubókin má skoða með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Vinnubók

Verð: 2990.- kr.

Samtöl Matthíasar Johannessen

- Bókmenntir

Matthías Johannessen skrifaði samtöl við merka Íslendinga og marga valinkunna erlenda aðila er hann starfaði sem blaðamaður og ritstjóri við Morgunblaðið. Voru viðtölin síðan gefin út í fimm viðtalsbókum af Almenna bókafélaginu á sínum tíma, en þær bækur eru löngu uppseldar. Nú hefur Þröstur Helgason valið áhugaverðustu samtölin úr öllum bókunum og bætt fleiri samtölum við til að hafa í þessari bók, auk þess að skrifa frábæran inngang að samtölunum.

Bókin hefur að geyma yfir tuttugu samtöl sem öll gætu nýst vel í kennslu og eiga mikið erindi til skólabarna sem og annarra.  Því höfum við útbúið verkefni með fimm völdum samtölum til að auðvelda kennurum að leggja þetta frábæra efni fyrir nemendur sína.  Það væri þá nóg fyrir skóla að verða sér úti um eitt bekkjarsett af bókinni eða fáein eintök af bókinni, sem gæti þá gengið á milli bekkja eða hægt væri að ljósrita uppúr.  Já hér er á ferðinni efni sem nemendur hefðu bæði gagn og gaman af að kynna sér.  Raunverulegar sögur af raunverulegu fólki í listrænum búningi Matthiasar Johannessens. Vinnubókina má skoða með því að smella á tengilinn hér að neðan.

 

Verð: 2990.- kr.

Lesum lipurt

- Íslenska
- Lestrarbækur

Skólavefurinn.is hefur nú tekið í sölu hinar frábæru léttlestrarbækur Lesum lipurt eftir Sigríði Ólafsdóttur, sérkennara. Hún hefur í áratugi starfað við lestrarkennslu seinfærra barna; sérkennslu, talkennslu og kennslu heyrnardaufra auk almennrar kennslu.

Bækurnar eru átta talsins og eru ætlaðar öllum byrjendum í lestri. Þær henta einnig sérlega vel nemendum sem fara hægt af stað við lestrarnám eða eru áhugalitlir um lestur.

Textinn í bókunum er mjög léttur og einfaldur í byrjun og mikið er um endurtekningar sem gerir það að verkum að nemandinn finnur fyrir getu sinni og sjálfstraust eykst. Bækurnar þyngjast svo stig af stigi og er farið í gegnum allar þrjár grunnlestraraðferðirnar, þ.e.a.s. fyrst orðaðferðina, síðan hljóðaðferðina og loks stöfunaraðferðina. 

Verð: 3600.- kr.

Átta bækur, fjölnota

Hugarflug - 1. stig

- Íslenska
- Lesskilningsbækur Skólavefsins
- hentar fyrir 4. - 7. bekk

Hugarflug - Lesskilningsbækur Skólavefsins er ný ritröð þar sem áherslan er fyrst og fremst lögð á það að nemendur læri að lesa sér til gagns. Kannanir hafa sýnt að íslenskir nemendur hafa dregist aftur úr erlendum jafnöldrum sínum í lesskilningi og því er gaman að geta hér kynnt til sögunnar námsefni sem sérstaklega er hannað til að efla lestur og lesskilning sem er jú undirstaða í flestu námi og grundvöllur í upplýsingaöflun.

Hugarflug er hugsað fyrir miðstig og efri bekki grunnskólans og inniheldur safn lestexta sem eru sérvaldir til þess að fræða og skemmta með tilliti til aldurs og markmiðum aðalnámskrár grunnskólanna

Í bókinni eru 27 lestextar með góðum verkefnum sem miðast fyrst og fremst við það að lesandinn tileinki sér efni þeirra og skilji út á hvað þeir ganga.  Einnig er þar að finna annars konar verkefni sem henta vel ef áhugi er fyrir að vinna með textana enn frekar.  Má þar nefna ritunaræfingar, málfræðiæfingar, orðabókaæfingar og fleira. Bókin er 60 blaðsíður. Rétt er að taka fram að reiknað er með að nemendur vinni öll verkefni í stílabækur þannig að bókin sjálf er fjölnota.

Verð: 980.- kr.

Hugarflug - 2. stig

- Íslenska
- Lesskilningsbækur Skólavefsins
- hentar fyrir 4. - 7. bekk

Nú er komin Hugarflug - 2. stig, bók númer tvö í ritröðinni Lesskilningsbækur Skólavefsins. Þetta eru bækur sem eru sérstaklega hannaðar til þess að þjálfa lesskilning.

Hugarflug er hugsað fyrir miðstig og efri bekki grunnskólans og inniheldur safn lestexta sem eru sérvaldir til þess að fræða og skemmta með tilliti til aldurs og markmiðum aðalnámskrár grunnskólanna

Á þessu öðru stigi er að finna 19 lestexta með góðum verkefnum sem miðast fyrst og fremst við það að lesandinn tileinki sér efni þeirra og skilji út á hvað þeir ganga.  Textarnir eru orðnir aðeins lengri en á fyrsta stiginu og verkefnin ögn meira krefjandi. Einnig er þar að finna annars konar verkefni sem henta vel ef áhugi er fyrir að vinna með textana enn frekar.  Má þar nefna ritunaræfingar, málfræðiæfingar, orðabókaæfingar og fleira. Bókin er 72 blaðsíður. Rétt er að taka fram að reiknað er með að nemendur vinni öll verkefni í stílabækur þannig að bókin sjálf er fjölnota.

Verð: 980.- kr.

Borgarmúsi og Sveitamúsi

- Íslenska
- hentar fyrir 2. - 3. bekk

Efnið er alls 44 blaðsíður og skiptist sagan sjálf í 6 stutta og þægilega leskafla.

Afgangurinn fellur svo undir verkefni, sem eru mjög fjölbreytt og skemmtileg og taka fyrir þætti eins og nafnorð, lýsingarorð, samheiti, lesskilning, tímaröð atburða, krossgátur og fleira.

Hefur þeirri reglu okkar verið fylgt að vera með erfið og létt verkefni og/eða viðfangsefni á víxl, enda mikilvægt að sem flestir nemendur finni einhverja fótfestu í efninu án hjálpar.

Efnið er unnið upp úr námsefni frá breska útgefandanum Domino Books en um viðbætur og staðfæringar sáu Páll Guðbrandsson og Ingólfur B. Kristjánsson. Sagan er skemmtilega myndskreytt, en textinn er með leturstærð 16. Eins og með annað námsefni okkar er þetta efni stutt á vefnum og verður hægt að nálgast söguna þar. Þar verður einnig hægt að hlusta á hana upplesna.

 

Verð: 590.- kr.

Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana

- Íslenska
- hentar fyrir 4. - 5. bekk

Námsefnið Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana er byggt á samnefndri sögu úr Fornaldarsögum Norðurlanda og eru textarnir og verkefnin unnin með hliðsjón af markmiðum Aðalnámskrár fyrir 4. bekk en teygja sig upp í 5. bekk.

Sagan skiptist í 18 kafla og höfum við endurskrifað kaflana þannig að þeir henti nefndum aldurshópum.  Lestexti hvers kafla telur 1-2 bls. Bókin skiptist í lesbók og verkefnabók. Lesbókin er í stærðinni A5 með límdum kili og verkefnabókin er einnota hefti. Einnig er hægt að prenta verkefnabókina út af Skólavefnum. Sagan sjálf er spennandi og ævintýraleg með tröllum, drekum og öðrum forynjum. Þetta efni hefur verið kennt víða og reynst mjög vel.

Hverjum kafla fylgja 3-5 verkefni sem, eins og áður sagði, taka mið af ýmsum þáttum íslenskunnar, s.s. efnisskilningi, lesskilningi, málfræði, ritun o.fl. Sem dæmi um yfirheiti verkefna má nefna: Efnisspurningar, Nafnorð, Orðskýringar, Teiknaðu, Rím, Samheiti, Eyðufylling, Orðaleikur, Kyn orða o.s.frv. Hægt er að skoða dæmi úr vinnubókinni með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Kafli 1

 

Verð:
Lesbók: 490.- kr.

Verkefnabók: 350.- kr.

Í bóli bjarnar

- Íslenska
- hentar fyrir 5.-7. bekk

Ný vönduð bók fyrir miðstig grunnskóla eftir Guðjón Ragnar Jónasson, þar sem höfundur samþættir heim nýrra Íslendinga og fornar íslenskar þjóðsögur og sagnir. Til að létta ungum lesendum lesturinn eru sjaldgæf orð útskýrð.

Bókin fjallar um ungan dreng, Tómas sem flutti til Íslands frá Póllandi og hefur búið hér í fjögur ár. Tilviljan leiða til þess að hann flytur til Grímseyjar og þá fyrst lendir Tómas í almennilegum ævintýrum.

Bókinni fylgir heildstætt vinnuhefti í íslensku upp á 43 blaðsíður sem hægt er að sækja á Skólavefnum. Í vinnuheftinu verður áhersla lögð á að auka málfærni og málskilning nemenda auk þess að ýta undir hópavinnu og hópumræðu.

Sjá vinnubók

Verð:
1490.- kr.

H.C. Andersen

- Íslenska
- hentar fyrir 4. - 6. bekk

H. C. Andersen þekkja flestir. Sögur hans hafa fylgt börnum til fullorðinsára um langan aldur og munu gera um ókomna framtíð.  Eru þær bæði skemmtilegar, þroskandi og kenna oft á tíðum góða siði og breytni. 

Í þessari kennslubók eru fjórar sögur úr smiðju Andersens og byggir textinn á þýðingum Steingríms Thorsteinssonar. Sögurnar sem um ræðir eru: Eldfærin, Prinsessan á bauninni, Tindátinn staðfasti og Ljóti andarunginn.  Bókin er í fallegri útgáfu með kili. Hverri sögu fylgja góð verkefni, sem taka mið af markmiðum aðalnámskrár í íslensku fyrir 4. – 6. bekk.  Byggja verkefnin á efni sagnanna og þjálfa því lesskilning, en einnig eru æfingar í almennri málfræði, ritun, orðaforða o. m. fl.

Rétt er að vekja athygli á því að hægt er að nálgast sögurnar í sérstakri vefútgáfu á Skólavefnum þar sem nemendum gefst kostur á að hlusta á þær upplesnar og glíma við gagnvirkar æfingar sem tengjast sögunum á einn eða annan hátt.  Hægt er að kaupa hljóðdisk með sögunum upplesnum.

 

Verð: 650.- kr.

Þjóðsögur

- Íslenska
- fyrir 8.-10. bekk

Við á Skólavefnum kynnum með stolti þrjár nýjar kennslubækur um íslenskar þjóðsögur eftir Dr. Baldur Hafstað prófessor við KHÍ, sem hugsaðar eru fyrir efsta stig.  Nefnast þær:

„Baulaðu nú...."  (8. bekkur)
„Ég átti að verða prestskona."  (9. bekkur)
„Þá hló marbendill."  (10. bekkur)

Þarf vart að taka það fram að bækurnar eru unnar í samræmi við þau markmið sem Aðalnámskrá grunnskóla kveður á um fyrir umrædda aldurshópa í íslensku en bekkjartalið er þó einungis leiðbeinandi. 

Bækurnar samanstanda af völdum þjóðsögum sem Baldur hefur valið af kostgæfni og með hliðsjón af viðkomandi aldurshópi.  Hverri sögur fylgir stutt umsögn þar sem farið er yfir sérkenni hennar og annað sem höfundur leggur áherslu á hverju sinni. Þá fylgja hverri sögu orðskýringar og greinagóð verkefni þar sem tekin eru fyrir eftirfarandi atriði: stílfræðileg atriði, umræður, munnlegur flutningur, efnisspurningar, hugleiðingar. 

Hér er á ferðinni bæði vandað og skemmtilegt námsefni sem kennarar mega ekki láta framhjá sér fara, enda nauðsynlegt að börn kynnist þessum sagnasjóði fortíðarinnar á aðgengilegan og fræðandi hátt.  Höfum við lagt allt kapp á að gera þessar bækur vel úr garði bæði hvað varðar uppsetningu, myndskreytingar og allan almennan frágang. 

Efnið verður eins og annað efni okkar stutt góðu efni á vef, en þó með öðrum hætti en venjulega, þ.e.a.s. efnið sjálft er ekki í heild sinni á vefnum, en hins vegar er boðið upp á alls kyns ítarefni, s.s. viðtöl við höfund þar sem hann útskýrir efnið og kennir það; efni sem upplagt er að nota í kennslu á skjávarpa í stofu.  Þá er einnig hægt að hlusta á sögurnar upplesnar á vefnum.

Verð:

Þjóðsögur 8. bekkur 980.- kr.

Þjóðsögur 9. bekkur 980.- kr.

Þjóðsögur 10. bekkur 980.- kr.

Labbi pabbakútur

- Íslenska
- hentar fyrir 2. og 3. bekk

Sagan Labbi pabbakútur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur kom fyrst út árið 1971 hjá Ísafoldarprentsmiðju.  Var hún þriðja barnabók Vilborgar, en áður hafði hún sent frá sér sögurnar Alli Nalli og tunglið (1959) og Sögur af Alla Nalla (1965).  Þá hafði hún einnig sent frá sér þrjár ljóðabækur, Laufið á trjánum (1960), Dvergliljur (1968) og Kyndilmessu (1971).  Seldist bókin fljótt upp og var lengi ófáanleg, allt þar til Skólavefurinn bauð upp á hana á vef árið 2003, þegar Vilborg var þar Skáld mánaðarins.  Samhliða vefútgáfu var útbúin útprentanleg útgáfa með fjölda verkefna og hefur sú útgáfa notið verulegrar hylli meðal kennara og við kynnum nú með stolti söguna sem kennslubók.

Bókin skiptist í lesbók og verkefnahefti. Lesbókin er með stóru og skýru letri og í alla staði mjög flott. Verkefnaheftið er fullt af góðum verkefnum, myndrænum í bland við málfræði. Þetta er skemmtileg bók sem er ætluð til kennslu í 2. og 3. bekk grunnskóla. Bókin hentar afar vel í kennslu fyrir nýbúa þar sem málfarið er afar eðlilegt og hversdagslegt. Bækurnar eftir Vilborgu hafa verið afar vinsælar hjá nemendum.

Sjá vinnubók

 

 

Verð:
Leshefti: 490.- kr.

Verkefnahefti: 350.- kr.

Sögur af Alla Nalla

- Íslenska
- hentar fyrir 2. og 3. bekk

Sögur af Alla Nalla eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur kom fyrst út árið 1965 hjá Ísafoldarprentsmiðju.  Var hún önnur barnabók Vilborgar, en áður hafði hún sent frá sér söguna Alli Nalli og tunglið árið 1959.  Þá hafði hún einnig sent frá sér ljóðabókina, Laufið á trjánum árið 1960. Seldist bókin fljótt upp og var lengi ófáanleg, allt þar til Skólavefurinn bauð upp á hana á vef árið 2003, þegar Vilborg var þar Skáld mánaðarins.  Samhliða vefútgáfu var útbúin útprentanleg útgáfa með fjölda verkefna og hefur sú útgáfa notið verulegrar hylli meðal kennara. 

Við höfum nú endurbætt þá útgáfu, þ.e. verkefnahlutann og eru verkefnin unnin með hliðsjón af íslenskuþætti Aðalnámskrár grunnskóla fyrir 2. og 3. bekk.  Bókin skiptist í lesbók og verkefnahefti. Í verkefnunum eru tekin fyrir atriði eins og sérnöfn og samnöfn, andheiti og samheiti, samsett orð, almennar eyðufyllingar, rím, orðaleikir af ýmsum gerðum, eintala og fleirtala. Lesbókin er með stóru og skýru letri og í alla staði mjög flott. Verkefnaheftið er svo stútfullt af skemmtilegum æfingum, myndrænar í bland við málfræði. Bókin hentar afar vel í kennslu fyrir nýbúa þar sem málfarið er mjög eðlilegt og hversdagslegt. Bækurnar eftir Vilborgu hafa verið afar vinsælar hjá nemendum.

Sjá dæmi úr vinnubók

 

Verð:
Leshefti: 490.- kr.

Verkefnahefti: 350.- kr.

Kasper og Jesper

- Íslenska
- hentar fyrir 1. og 2. bekk

Bókin um Kasper og Jesper er fjórða léttlestrarbókin okkar eftir Berglindi Guðmundsdóttur en efnið frá henni á Skólavefnum hefur lengi verið með því vinsælasta á vefnum hjá okkur. Þessi bók er í anda Sóma og Sæla sjóræningja og er mikið lagt upp úr því að bókin sé falleg á að líta og aðhöfði til hinna yngri lesenda.

Í þessari bók er ákveðið samhljóðasamband æft í textanum en það er "sp". Bókin telur 36 blaðsíður og hefur að  geyma létt og sniðug verkefni.

Verð: 590.- kr.

Stína og Ásta

- Íslenska
- hentar fyrir 1. og 2. bekk

Bókin um Stínu og Ástu er skemmtileg léttlestrarbók eftir Berglindi Guðmundsdóttur. Hún er af sama meiði og bækurnar um sjóræningjana Sóma og Sæla sem komu út síðasta vetur. Í bókinni um Stínu og Ástu er tekist á við samhljóðasambandið "st".

Bókin er 36 blaðsíður og afar fallega myndskreytt. Eins og í öðrum léttlestrarbókum okkar er að finna einföld og skemmtileg verkefni í bókinni sem nemendur geta unnið í bókina sjálfa eða í stílabók.

Verð: 590.- kr.

Sómi sjóræningi

- Íslenska
- hentar fyrir 1. og 2. bekk

Nú bjóðum við upp á glænýja bók í nýrri bókaröð eftir Berglindi Guðmundsdóttur, sem tekur við þar sem fyrri bókaröðinni sleppir, en sú fyrri er aðgengileg á Skólavefnum.is og ráðgert er að gefa hana einnig út á prenti.  Eru þetta sjóræningjabækur og ættu því að höfða vel til yngstu barnanna.  Nefnist fyrsta bókin Sómi sjóræningi.

Sögurnar eru öðruvísi en hefðbundnar slíkar bækur eru því auk lestextanna bjóða þær upp á nokkrar laufléttar þrautir sem börnin eiga að glíma við eins og t.a.m. að spora eftir brotalínum og að svara nokkrum samviskuspurningum.  Einnig geta nemendur litað myndirnar.

 

Verð: 590.- kr.

Sæli sjóræningi

Sæli sjóræningi er önnur bókin í nýrri röð léttlestrarbóka frá Skólavefnum. Bækurnar eru skrifaðar af Berglindi Guðmundsdóttur og eru frábær nýjung í flóru bóka fyrir yngstu nemendurna. Sæli sjóræningi er fallega myndskreytt saga sem er í senn skemmtileg og þroskandi því í bókinni er fjöldi þrauta og leikja.

Sögurnar eru öðruvísi en hefðbundnar slíkar bækur eru því auk lestextanna bjóða þær upp á nokkrar laufléttar þrautir sem börnin eiga að glíma við eins og t.a.m. að spora eftir brotalínum og að svara nokkrum samviskuspurningum.  Einnig geta nemendur litað myndirnar.

 

Verð: 590.- kr.

Rejsen til Udgårdsloke

- Danska
- hentar fyrir efri bekki

Í dönsku bjóðum við upp á skemmtilega sögu úr norrænu goðafræðinni eftir Vilhjálm Gíslason. Sagan fjallar um för Þórs til Útgarðaloka og kemur úr Gylfaginningu. Sagan er skemmtileg og stútfull af krefjandi og áhugaverðum verkefnum.Bókin kemur sem fjölnota lesbók og einnota vinnubók. Allt í allt eru í lesbókinni 12 kaflar og hverjum kafla fylgja 6-7 verkefni í verkefnabókinni. Er þar um að ræða t.d. lesskilningsspurningar, andheiti, samheiti, krossgátur og eyðufyllingar. Einnig er á Skólavefnum að finna glæsilega vefútgáfu með upplestri og gagnvirkum æfingum.

Bókin er ætluð 8.-10. bekk og er það von okkar að hún veki lukku jafnt hjá nemendum sem kennurum. Bókin er glæsilega myndskreytt og vel til þess fallin að fanga áhuga nemenda.

 

Verð:

Lesbók: 990.- kr.

Vinnubók: 450.- kr.

Tölur og talning 1 - 4

- Stærðfræði
- hentar fyrir 1. bekk

Við bjóðum nú upp á frábært nýtt efni í stærðfræði fyrir þá allra yngstu. Um er að ræða bækur með skemmtilegum verkefnum sem hjálpa byrjendum að læra á og vinna með tölurnar. Efnið hentar frábærlega fyrir yngstu bekkjardeildir grunnskólans eða 1. bekk. Efnið er að mestu byggt á bókinni Numbers and Counting – First Steps sem gefin var út hjá bókaforlaginu Domino Books og hefur verið notað víða með góðum árangri. Efnið í bókunum fjórum er afar myndrænt og þjálfar nemendur í að læra að skrifa, vinna með og leika sér með tölurnar. Frábært efni fyrir nemendur að byrja á þegar fyrstu skrefin í eru tekin í heimi stærðfræðinnar.

Í Tölur og talning 1-4 er farið yfir tölurnar 1-10 á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Bækurnar eru 40 blaðsíður að lengd. Í framhaldinu verða síðan gefnar út bækurnar Tölur og tengingar fyrir 2. bekk.

Tölur og talning 1 - Verð: 590.- kr.

Tölur og talning 2 - Verð: 590.- kr.

Tölur og talning 3 - Verð: 590.- kr.

Tölur og talning 4 - Verð: 590.- kr.

Tölur og tengingar 1

- Stærðfræði
- hentar fyrir 2. bekk

Stærðfræðibækurnar Tölur og talning 1-4 fyrir 1. bekk slógu heldur betur í gegn síðasta vetur og höfum við fundið  fyrir mikilli ánægju með þær hjá kennurum. Nú  kemur fyrsta bókin í sömu ritröð ætluð 2. bekk og heitir hún Tölur og tengingar 1.

Bókin tekur við þar sem frá var horfið í seinustu Tölur og talning bókinni. Hér er þó unnið með hærri gildi talna og kynntar til sögunnar flóknari reikniaðgerðir eins og deiling, margföldun og rúmfræði. Bókin er sérlega skemmtilega myndskreytt og pössum við að hafa alltaf einföld og skemmtileg myndræn verkefni í bland svo að allir finni eitthvað sem þeir ráða við.

Verð: 590.- kr.

Bits and Pieces in English Spelling

- Enska
- hentar fyrir 8. - 10. bekk

Skólavefurinn hefur útbúið mjög hentuga og gagnlega bók í enskri ritun og stafsetningu sem við köllum Bits and Pieces in English Spelling. Í stað þess að fara yfir hvert einast málfræði- og stafsetningaratriði eru hér teknar fyrir þær reglur sem helst vilja vefjast fyrir íslenskum nemendum.

Bókinni er skipt upp í kennslustundir en þar notum við orðið „stundir“ nokkuð frjálslega. Mætti jafnvel frekar tala um kennsluatriði eða –einingar. Reynum við að hafa hverja stund stutta þannig að einungis eitt atriði er tekið fyrir í hverri kennslustund og mælumst í leiðinni til þess að stutt sé milli stunda.

Þetta er afar markviss þjálfun í enskri ritun og stafsetningu og er sérstaklega miðuð að þeim þáttum sem helst eru íslenskum nemendum erfiðir. Uppsetningin og efnistökin gera þetta að frábærri nýjung í enskukennslu á Íslandi. Er bókin 50 blaðsíður að lengd og hefur að geyma 38 stundir.

Verð: 790.- kr.

Enskar krossgátur og aðrar orðaforðaæfingar

- Enska
- hentar fyrir 5. - 10. bekk

Krossgátur hafa lengi stytt fólki stundir í annríki daganna.  En það er ekki bara að krossgátur séu fólki til skemmtunar þegar það hvílir sig frá dagsins önnu, heldur eru þær tilvalið tól til að þjálfa okkur á margvíslegan máta.  Krossgátur nýtast nefnilega vel til að læra alls kyns staðreyndir, festa ýmis atriði í minni, þjálfa réttritun og efla rökhugsun.

Í þessari kennslubók bjóðum við upp á þematengdar krossgátur sem auk þess að hnykkja á almennum orðaforða, þjálfa einnig nemendur í enskri stafsetningu.  Þá fylgja með annars konar orðaforðaæfingar. Alls er bókin 56 blaðsíður.

Bókin er þannig uppbyggð að á hverri opnu er krossgáta sem tekur fyrir orð sem tengjast ákveðnu þema eða málfræðiatriði og á móti er listi yfir sömu orð þar sem á að tengja þau við skýringu.  Þannig hafa nemendur orðin hjá sér til glöggvunar. 

 

Verð: 790.- kr.

Stóra Snillingabók Skólavefsins

- Þjálfun í þrautalausnum
- hentar fyrir 5. - 7. bekk

Skólavefurinn býður nú upp á Stóru Snillingabókina, en hún hentar vel sem almenn þrautabók fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Bókin kemur í fallegri útgáfu með kili.

Getur verið hentugt að brjóta upp t.a.m. stærðfræðitíma með slíkum þrautum, sem auk þess að vera skemmtilegar bjóða upp á öðruvísi þrautir en er að finna í hefðbundnum kennslubókum og gefa kost á öðruvísi nálgun. 

Þá eru þrautirnar í bókunum misþungar þannig að allir geta fundið þrautir við hæfi. 

Út hafa komið tvær bækur í þessum flokki, Snillingabók 1 og 2, við höfum sameinað þær í eina stóra bók og fá nemendur því enn fleiri þrautir. Bækurnar eru tilvaldar sem hvers kyns afþreyingar- eða uppfyllingarefni.

   

Verð: 590.- kr.

Krossgátur í vasann

- Þrautalausnir
- hentar fyrir 8. - 10. bekk

Krossgátur í vasann er um margt óvenjuleg krossgátubók sem hentar vel í efstu bekkjum grunnskólans. 

Vísbendingarnar í henni er unnar upp úr Alfræðiorðabókinni og taka mið af þeim fróðleik sem nemendum grunnskólans er ætlað að hafa á valdi sínu.

Bókin hefur einnig verið notuð sem grunnur fyrir spurningakeppnir í skólastofunni orðin sem verið er að leita að eru svör við spurningum frekar en einhver samheiti eins og í hefðbundnum krossgátum.

 

Verð: 490.- kr.

Hljóðbækur

- Mikið úrval skemmtilegra hljóðbóka
fyrir alla aldurshópa

- Sögur eftir Þorstein Erlingsson - Hljóðdiskur m/bók

 

Sögurnar Gamli Lótan og Sassanela hin sægöfga eftir Þorstein Erlingsson eru sígild íslensk ævintýri eftir eitt af öndvegisskáldum þjóðarinnar.

 

 

 

Verð: 1.990.- kr.

 

- Ævintýri H.C. Andersen

Ævintýri H.C. Andersen þarf vart að kynna fyrir nokkrum, svo þekkt eru þau.  Á þessum diski er að finna fjögur ævintýri:  Eldfærin, Prinsessuna á bauninni, Tindátann staðfasta og Ljóta andarungann.

 

 

Verð: 990.- kr.

 

Barnasögur Skólavefsins 1

Hér er á ferðinni skemmtilegur diskur með fjölbreyttum sögum úr ýmsum áttum fyrir krakka á öllum aldri.

 

 

 

Verð: 1.590.- kr.

Róbinson Krúsó
 (2 diskar)

Hið þekkta ævintýri um Róbinson Krúsó stendur alltaf fyrir sínu.  Hér er það í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar frá árinu 1886 en þó breytt og lagað á stöku stað til að henta betur lesendum dagsins í dag.

 Verð: 1.890.- kr.

Hrafnkels saga Freysgoða

Hrafnkels saga Freysgoða hefur lengi verið með vinsælustu Íslendingasögunum, enda er hún bæði skemmtileg, vel skrifuð og listræn.  Þá hefur hún mikið verið notuð til kennslu í grunn- og framhaldsskólum.

 

Verð: 1.590.- kr.

Júdas eftir Sigurð Róbertsson

Sagan Júdas eftir Sigurð Róbertsson birtist í smásagnasafninu Lagt upp í langa ferð sem kom út árið 1942.  Segir hún frá hinum eina sanna Júdasi Ískaríot, en sjónarhornið er ólíkt því sem við erum vön að fylgja og er óhætt að segja að sagan veiti okkur nýja innsýn í þessa þekktu sögu úr Biblíunni.

 

 

 

Verð: 1.590.- kr.

Gunnlaugs saga ormstungu

Fáar Íslendingasögur hafa notið jafn mikilla vinsælda og Gunnlaugs saga ormstungu, enda stórkostleg saga sem býður upp á allt sem góða sögu má prýða; heitar ástir, mikil örlög og heiftúðug áflog í listrænum búningi.

 

Verð: 1.590.- kr.

Kjalnesinga saga og Jökuls þáttur Búasonar

Kjalnesinga saga fellur í flokk yngri Íslendingasagna og er talin rituð um eða eftir aldamótin 1300.  Þar er raunsæið farið að víkja fyrir reyfarakenndum atburðum sem eiga ekkert skylt við raunverulega atburði.  Við merkjum þar skyldleika við þjóðsögur sem og fornaldar- og riddarasögur.

 

 

Verð: 1.590.- kr.

Pantanir

Til þess að panta bækur frá Skólavefnum skal senda tölvupóst á boksala@skolavefurinn.is. Í subject-línuna skal setja "Pöntun frá (þinn skóli)". Vöruheiti og magn verða að koma skýrt fram og einnig er mikilvægt að fram komi nafn og kennitala greiðanda, hér að neðan er pöntunarlisti á Excel formi sem þið getið sótt, fyllt út og sent okkur sem viðhengi. Afhendingartími er svo eftir samkomulagi og viðtakandi greiðir sendingarkostnað. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þið hafið einhverjar spurningar, við tökum öllum fyrirspurnum vel.

Pöntunarlisti (smellið og veljið "save")

Með bestu kveðju, Skólavefurinn