September 2004
Eins og flestir vita þreyja nemendur 4., 7.
og 10. bekkja samræmd próf á hverju ári. Í 4.
og 7. bekk er það í íslensku
og stærðfræði en í 10.
bekk eru prófin mun fleiri. Í vetur ætlar
Skólavefurinn að bjóða upp á þjálfunarprógramm
fyrir prófin, sem byrjar strax í dag.
Við förum rólega af stað en aukum
efnið jafnt og þétt eftir því sem
nær dregur prófunum. Efnið mun samanstanda
af gagnvirkum samræmdum prófum og þjálfunarefni í því sem
reynst hefur nemendum erfitt og líklegt er
að komi að góðum notum. Við hvetjum
alla til að taka þátt í prógramminu
frá byrjun. því ekki er ráð nema í tíma
sé tekið.
Við byrjum á efni fyrir 10. bekk
1) Stærðfræði
fyrir 10. bekk.
Við byrjum á að skoða nokkur dæmi
um flatarmál og ummál hrings, en búast
má fastlega við að svoleiðis dæmi
komi á prófinu í vor. Við vekjum
athygli á vídeóútskýringum
með dæmunum sem sýna hvernig þau
eru leyst. Smellið einfaldlega á tengilinn
fyrir neðan spurningarnar til að sjá útskýringarnar.
2) Danska fyrir 10. bekk.
Fyrsti kafli í skemmtilegri sögu eftir
Vilhjálm Gíslason “Rejsen með guderne”.
Sagan reynir á mörg atriði sem verður
prófað úr, t.d. lesskilningi, skilningi á mæltu
máli og málfræði.
Nemendur eiga að lesa kaflann vandlega yfir
og hlusta á upplestur á dönsku
sem fylgir kaflanum. Neðst á síðunni
eru spurningar sem nemendur eiga að svara eftir
að hafa lesið kaflann vel yfir, annað hvort í ritvinnsluskjali í tölvunni
eða á blaði. Að lokum eru tvær
stuttar gagnvirkar æfingar. Þá höfum
við útbúið x mín. kynningu á dönskuæfingunni
sem gott er að skoða áður.