Í Rauðárdalnum (I. hluti) - Upplesin framhaldssaga m/ góðum verkefnum

Sagan Í Rauðárdalnum er eftir Vestur-íslenska rithöfundinn Jóhann Magnús Bjarnason. Hér fáið þið fyrsta þáttinn af þremur og inniheldur hann 21 lestur með verkefnum. Hverjum lestri fylgja einföld og góð verkefni og miðast hver hlustun við 15 - 20 mínútur.
Efnið hentar vel sem ítarefni 1-2 í viku. Þá brýtur þetta upp hefðbundna kennslu á þægilegan hátt. Framkvæmdin er einföld. Það eina sem þarf er tölva og hátalarar í stofuna og svo er að prenta út vinnublað nem. með hverjum lestri og dreifa því í bekkinn. Efnið er hugsað sem viðbót og/eða ítarefni með heildstæða námsefninu Vanda málið, en að sjálfsögðu má nota það alveg óháð því.
Við vekjum athygli á stuttum kennsluleiðbeiningum og inngangi sem gott er að fylgja eða lesa áður en byrjað er að nota efnið. Þá er einnig hægt að sækja lausnahefti við verkefnunum neðst á síðunni. |