Bragur.is - Nýr vefur um bragfræði fyrir ljóðelska

Við bjóðum nú upp á skemmtilega nýjung, glænýja síðu þar sem áherslan er á bragfræði. Þessi síða er fyrst og fremst hugsuð fyrir alla þá sem hafa áhuga á bragfræði og vilja læra grunnatriðin í því hvernig á að yrkja rímur. Vefurinn samanstendur af stuttri kennslubók sem hægt er að skoða á vef eða prenta út, auk verkefna. Rúsínan í pylsuendanum er svo hið svokallaða Fyrirspurnahorn, en þar getið þið sent inn spurningar um allt sem þið viljið vita varðandi bragfræði. Síðast en ekki síst getið þið sent inn ykkar eigin tilraunir til að yrkja og fengið viðbrögð við þeim frá fagmanni, en umsjónarmaður og höfundur þessarar síðu er einmitt Ragnar Ingi Aðalsteinsson, en hann lauk doktorsprófi í fyrra sem ber heitið Tólf alda tryggð þar sem hann rannsakaði þróun stuðlasetningar frá elsta þekktum norrænum kveðskap fram til nútímans. Hvetjum við alla og þess vegna heilu bekkina til að senda inn vísur. Öllum fyrirspurnum verður svarað.

 



Bragur.is
(forsíða)

   
Kennsluhefti í ljóðum með verkefnum og svörum

Skólavefurinn hefur nú hafið útgáfu á stuttum ljóðaheftum fyrir ýmsa aldurshópa, þar sem reynt er að nálgast ljóðakennslu útfrá öðru sjónarhorni en hingað til hefur tíðkast. Í hverju hefti eru nokkur atriði tekin fyrir og skýrð, auk þess sem nokkur ljóð eru valin til umfjöllunar. Nú eru komin út hefti fyrir 4. og 6. bekk. (Sjá hér fyrir neðan)

5. - 10. bekkur



Svífðu burt og sestu hjá sumargleði þinni
Kennsluhefti í ljóðum um sumarið .

 



Svör við verkefnum eru aftast í hefti
Gott vinnuhefti í ljóðum sem tengist sumri og vori. Telur 9 bls. og þá eru svör við verkefnum að finna á bls 10 og 11. Í heftinu er unnið með alls kyns hugtök tengd ljóðum.

4. bekkur



Ljóðaleikur
Kennsluhefti í ljóðum fyrir 4. bekk

 

Í þessu hefti sem telur 11 bls. er unnið með rím og ljóðstafi og hugtök eins og stuðlar, höfuðstafur, karlrím, kvenrím og veggjað rím.

6. bekkur


Ljóðabókin mín
Kennsluhefti í ljóðum fyrir 6. bekk

 

Í heftinu sem telur 19 bls. er vikið að fornum bragarháttum, rími, ljóðstöfum og efni ljóða.

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is