Hetjuspegill / Með hetjur á heilanum - Samþætt námsefni í íslensku
Það er okkur sönn ánægja að bjóða upp nýtt og spennandi námsefni í íslensku eftir GUÐJÓN RAGNAR JÓNASSON, sem ber yfirheitið MEÐ HETJUR Á HEILANUM annars vegar
og
HETJUSPEGILL hins vegar. Er hér um að ræða lestrarbók með kennslu og verkefnahefti upp á 42 blaðsíður sem hægt er að nálgast hér á Skólavefnum. Lestrarbókin var gefin út af bókaforlaginu SÖLKU og hefur notið mikilla vinsælda bæði í skólum og á almennum markaði, enda hefur hún hlotið mjög lofsverða dóma frá gagnrýnendum. Kennslu- og verkefnaheftið HETJUSPEGILL kemur nú hins vegar fyrst út á almennum markaði hér á Skólavefnum. Þökkum við Guðjóni kærlega fyrir að fá að birta þetta efni hér á vefnum og munu margir taka því fagnandi. Já, nýjungarnar eiga sér stað hér á Skólavefnum. Efnið hentar vel fyrir miðstig grunnskólans, 5.-7. bekk en auk þess sem lestrarbókin býður upp á orðskýringar og áhugaverða atburðarás býður verkefnaheftið upp á algjörlega nýja nálgun í íslenskukennslu sem lengi hefur skort. Fyrsti kafli heftisins nefnist Tungumálið og af undirköflum má fá ofurlitla hugmynd um út á hvað efnið snýst, en þeir bera heitin: Uppruni tungumálsins, Indóevrópska málaættin, Hugtakið texti, Greining á textamynstri, Stofnun Árna Magnússonar og Fallbeygt á netinu. Hvetjum við alla er láta sig góða kennsluhætti varða að kynna sér þetta efni nánar. Þeir skólarsem hafa áhuga á að kaupa bókina geta gert það með því að senda okkur tölvupóst, en verkefnaheftið fá menn svo hér á vefnum.