Hvalir
Við viljum vekja athygli ykkar á nýju og
glæsilegu efni sem við bjóðum nú upp á,
en það er heildstætt námsefni um hvali.
Skiptist efnið í þrjá hluta:
a) Meginmál.
b) Einstök dýr.
c) Leikir og annað.
Meginmálið er hægt að skoða í skemmtilegum
margmiðlunarbúningi með gagnvirkum orðskýringum
og myndbirtingum sem og að hægt er að prenta það út
með góðum verkefnum. Telur það þannig
tæpar 30 bls. Einstakir hvalir til umfjöllunar eru
alls 16, 8 skíðishvalir og 8 tannhvalir. Er einnig
hægt að skoða þá í margmiðlunarbúningi
og eða prenta hvern stakan hval út. Þá er
og verður boðið upp á áhugaverða þjálfunarleiki úr
efninu. Hér er á ferðinni einkar sniðugt
og áhugavert efni í náttúrufræði. |