Nýjung - forrit fyrir rúmfræði
Við kynnum nýtt forrit fyrir rúmfræðikennslu. Í því getur nemandinn mælt lengdir með reglustiku, skrifað eða teiknað inn á myndir, notað reiknivél, nýtt sér rúðustrikað blað til útreikninga og mælt horn. Á næstunni munum við bjóða upp á fjölmargar æfingar þar sem ýmis búnaður forritsins verður notaður.
Mæling á strikum með reglustiku
Í þessari æfingu á nemandi að mæla lengdir strika með reglustiku. Til að kalla fram reglustikuna er smellt á takkann með mynd af reglustiku á og örvartakkarnir á lyklaborðinu eru síðan notaðir til að snúa reglustikunni. Hægt er að færa reglustikuna með músinni. Vídeóleiðbeiningar má kalla fram í forritinu með því að smella á hjálpartakkann, neðst hægra megin.
Mæling á strikum - æfing 1
Leiðbeiningar - notkun reglustiku í forritinu
Mæling á hornum með gráðuboga
Í þessari æfingu tökum við fyrir hornamælingar og á nemandi að mæla horn sem eru 0-90° að stærð með gráðuboga og svara með 5 gráðna nákvæmni. Til að kalla fram gráðubogann er smellt á takkann með mynd af gráðuboga á og örvartakkarnir eru síðan notaðir til að snúa gráðuboganum. Hægt er að færa gráðubogann með músinni. Vídeóleiðbeiningar má kalla fram í forritinu með því að smella á hjálpartakkann, neðst hægra megin. Efnið hentar vel fyrir 6. bekk, en í námskrá segir að nemendur eigi að teikna og mæla horn með a.m.k. 5° nákvæmni.
Hornamælingar - æfing 1
Leiðbeiningar - notkun gráðuboga í forritinu
--------------------------------------------
Við viljum gjarnan heyra frá þér um efnið: Tölvupóstur |