Glænýtt
kennslutól - Bylting í kennslu á Neti
Okkur er það mikil ánægja að fá að kynna
til sögunnar glænýtt og hreint ótrúlegt
kennslutól sem hannað var í smiðju Skólavefsins,
og opnar alveg nýjar víddir í kennslu á Netinu.
Með þessu verkfæri, sem við köllum ,,Vefleiðangur
Skólavefsins" er hægt að taka fyrir valdar vefsíður
og láta nemendur vinna verkefni úr þeim beint af vefnum.
Er skjánum þá skipt í tvennt, þ.e. öðrum
megin er verkefni nemandans (til vinstri) og hinum megin er vefsíðan
sem unnið er með (til hægri). Verkefnin geta verið af ýmsum
toga, allt frá hefðbundnum fjölvalsspurningum til stórra
ritgerðaspurnniga. Þegar nemendur hafa leyst verkefnið er
hægt að slá inn netfang kennarans og senda honum niðurstöðurnar í tölvupósti. |
|
Munch safnið

|
Um
vefleiðangra
Kennslu-
leiðbeiningar
|
Heimsókn í Munch safnið í Osló
Vefleiðangur |
|
Netleiðangurinn tengist tveimur námsgreinum, sem eru myndlist
annars vegar og saga hins vegar, en í söguhluta Aðalnámskrár
grunnskóla fyrir 8. bekk er kveðið á um að nemendur
eigi að kynnast Edvard Munch og málverkinu ópið.
Er kennurum bent á að lesa vel kennsluleiðbeingarnar
og allar upplýsingar um leiðangurinn sem fylgja í sér
skjali.
|
| |
|
Gin- og klaufaveiki
 |
Gin- og klaufaveiki
PDF-skjal
Ritvinnslu
skjal
|
|
Í þessu verkefni er umfjöllun um
gin- og klaufaveikina. Nemendur eiga að leysa ýmis verkefni.
Svörin finna þeir á ákveðnum vefsíðum á Netinu |
|
Hernám Íslands - vefsíða RÚV

|
|
|
Á vefsíðu Ríkisútvarpsins má finna áhugavert
efni um hernám Íslands á stríðsárunum,
svo sem myndir, hljóðbúta og texta. Getur nýst vel sem ýtarefni
við kennslubókina "Samferða um söguna". |
Heimsókn á Listasafn Íslands

|
|
|
Nemendum er kynnt vefsíða Listasafns Íslands og látin
vinna verkefni um það sem fyrir augu ber. |
VÍSINDAVEFURINN
 |
|
|
Á Vísindavefnum
má leggja fram spurningar sem kennarar við Háskóla Íslands
svara. Þar má einnig lesa svör við spurningum sem
borist hafa. Í þessari æfingu er nemendum kennt hvernig þeir
geti notað þessa áhugaverðu vefslóð. |
Knattspyrnuliðið Stoke
City
 |
|
|
Markmiðið með þessu
verkefni er að kynna fyrir nemendum uppbyggingu vefsíðna
og hvernig nota megi þær til að finna upplýsingar.
|
Metropolitan
listasafnið í New York
 |
|
|
Á vefsíðu safnsins er að finna yfir 3500 myndir af listaverkum.
Nemendum er kynnt vefsíðan og hvernig þeir geti skoðað myndir
af listaverkum. Nemendur eiga að svara spurningum samhliða kynningu á safninu. |