Heimspekingar fyrr og nú
eftir Dr. Geir Sigurðsson
Heimurinn, eðli hans og uppbygging, hefur löngum valdið mönnum heilabrotum. Í aldanna rás hefur orðið til hópur manna sem við í daglegu tali köllum heimspekinga, sem hafa það að markmiði að finna röklegt samhengi tilverunnar, þannig að við getum skilið hana betur og áttað okkur á tilgangi lífsins.
Á þessari síðu munum við bjóða upp á kynningar á helstu heimspekingum sögunnar, helstu kenningum þeirra og niðurstöðum sem þeir komust að. Efnið er boðið í þægilegum og aðgengilegum einingum sem hentar bæði einstaklingum og kennurum. Efnið er unnið af Geir Sigurðssyni heimspekingi. |