Stuðningssíða fyrir nemendur með lesraskanir

Á þessari síðu er að finna tengla á efni af Skólavefnum sem hentar vel fyrir nemendur með lesraskanir.

Við höfum í gegnum tíðina fengið ótal reynslusögur frá foreldrum og kennurum nemenda með lesraskanir varðandi það að vefurinn hafi nýst þeim afar vel. Til dæmis má þar nefna mikið magn efnis með upplestri, en nemendur geta þá hlustað og jafnvel lesið um leið. Gagnvirk verkefni koma einnig að góðum notum, en þau brjóta upp hefðbundna verkefnavinnu þar sem öllu er svarað skriflega á blað. Myndræn framsetning efnis og sá möguleiki að geta stækkað allan texta nýtist sérlega vel. Við eigum einnig nokkuð af myndbandsefni sem kemur í góðar þarfir.

Meira um síðuna.

Ekki áskrifandi? Skráðu þig hér.

1.-4. bekkur

  • Leikskólasíðan
    Náms- og skemmtiefni fyrir krakka á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskólans.
  • Samræmd próf í 4. bekk
    Gagnvirk eldri samræmd próf og þjálfunarnámskeið í íslensku og stærðfræði.
  • Léttlestrarbækur Skólavefsins
    Flott fyrir þá sem eru að byrja að lesa, flettibækur á vefnum með upplestri.
  • Stafagrín
    Skemmtilegur leikur þar sem leikið er með stafrófið.
  • Sögur af Alla Nalla
    Skemmtileg saga eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, upplestur og gagnvirk verkefni. Víða notað í grunnskólum.

5.-7. bekkur

8.-10. bekkur

  • Stærðfræðiskýringar
    Myndbandsskýringar á 80 stærðfræðihugtökum, þau útskýrð og sýnt hvernig á að vinna með þau.
  • Íslensk Málfræði
    Myndbandskennsla í íslenskri málfræði.
  • Samræmd próf í 10. bekk
    Samræmd próf frá árinu 2000 í gagnvirkum búningi og þjálfunarnámskeið frá seinustu samræmdu prófum sem nýtast vel í prófundirbúningnum.
  • Sögufrægir Íslendingar
    Allt um Jón Sigurðsson, Hannes Hafstein og Heimastjórnina.
  • Egilssaga
    Við bjóðum upp á flestar íslendingasögurnar sem kenndar eru í grunnskóla, með upplestri, gagnvirkum æfingum og fleiru.

Annað:

  • Táknmálstengill
    Fræðsla um táknmál og myndbandskennsla í táknmáli.
  • Heimspekingar fyrr og nú
    Farið yfir sögu heimspekinnar, allt upplesið og gagnvirkar æfingar.
  • Framhaldsskóli.is
    Eins og Skólavefurinn nema fyrir framhaldsskólanema. Aðgangsorð að Skólavefnum gilda einnig á framhaldsskoli.is, aðeins þarf eina áskrift.
  • Hlusta.is
    Hljóðbókasíða með miklu magni af upplesnu, íslensku efni sem hægt er að hala niður. Settu t.d. íslendingasögurnar á iPodinn og hlustaðu ásamt eða í stað þess að lesa.

 

Um síðuna:

Hér er að finna valið efni sem ætti að henta vel nemendum með lesraskanir. Auðvitað eru lesraskanir mismunandi og sama efnið hentar ekki endilega öllum. Einnig er vert að taka það fram að efnið er ekki unnið sérstaklega fyrir nemendur með lesraskanir heldur er þetta hefðbundið efni sem hefur, vegna framsetningar þess, reynst þessum nemendum mjög vel. 

Við höfum hér að leiðarljósi að finna til efni á Skólavefnum sem hefur að geyma upplestur, þannig að nemendur geti hlustað og lesið með. Einnig að hægt sé að stækka letrið, að efninu fylgi gagnvirkar æfingar og að mikið sé um myndræna framsetningu. Þessi síða er í stöðugri vinnslu og munu fjölmargir tenglar bætast við.

 

Ef þú veist um efni á Skólavefnum sem þú telur eiga heima á þessari síðu skaltu ekki hika við að senda okkur línu.

 

Skólavefurinn.is skolavefurinn@skolavefurinn.is