Aðsendar greinar
Bækur Kennsluefni til útprentunar Gagnvirkt efni Ítarefni Lýsing
Vinnuhefti við bækur eftir Arnheiði Borg

 

Óboðnir gestir

- vinnuhefti -

 

   

Í bókinni Óboðnir gestir eftir Arnheiði Borg segir m.a. frá tröllabörnunum Græðgi, Fýlupúka, Óþekktarormi og Leti, auk jötuns sem ekki vill segja til nafns. Bókin hentar vel til kennslu í lífsleikni, en einnig má nota hana sem almenna lestrarbók.  Bókina er hægt að panta hjá Skólavefnum.

Vinnuhefti með bókinni telur 8 bls.

 

 

Ekki segja frá

- vinnuhefti -

 

   

Í bókinni Ekki segja frá eftir Arnheiði Borg er á nærfærinn og skilvirkan hátt tekið á böli því sem alkóhólismi getur haft í för með sér. Má segja að efnið henti vel frá 4. bekk og upp úr. Bókin hentar vel til kennslu í lífsleikni, en einnig má nota hana sem almenna lestrarbók. Bókina er hægt að panta hjá Skólavefnum og síðan geta menn prentað vinnuheftið út af vefnum.

 

Geimálfurinn frá Varslys
Skólavefurinn í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg býður ykkur upp á námsefnið Geimálfurinn frá Varslys, en það er námsefni í lífsleikni um slys og slysavarnir sem ætlað er fyrir nemendur í 4., 5. og 6. bekk. Á síðunni getið þið nálgast efnið sem hefur að geyma leshefti, verkefnablöð, glærur, myndbandsskeið o.fl. Hvetjum við ykkur einni til að kíkja á kennsluleiðbeiningar um efnið á eftirfarandi slóð: www.geimalfurinn.is/kennsluleiðbeiningar.

 



Geimálfurinn frá Varslys
(forsíða)

   
         

 

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is