Þjálfunarprógramm fyrir 10. bekk

Næsta vor fara 10. bekkingar í samræmd próf. Reynslan hefur sýnt að bestur árangur í námi næst með því að vinna vel jafnt og þétt yfir allan veturinn, frekar heldur en að ætla sér að læra mikið á skömmum tíma rétt fyrir próf.

Skólavefurinn mun bjóða upp á þjálfunarprógramm fyrir prófin. Við förum rólega af stað en aukum efnið jafnt og þétt eftir því sem nær dregur prófunum. Efnið mun samanstanda af gagnvirkum samræmdum prófum og þjálfunarefni í því sem reynst hefur nemendum erfitt og líklegt er að komi á prófinu.

 

29. þáttur

A) Samfélagsfræði

Við tökum fyrir bls. 12-25 í 4. hefti í landafræði og fjórða heftið í sögu. Efnið er unnið upp úr inntakstöflu sem Námsmatsstofnun gaf út fyrir prófin og hefur það fengið mjög góðar viðtökur og er talið mjög gagnlegt til undirbúnings fyrir prófin.

Þá reynum við okkur á prófinu frá því í fyrra.

 

 

Landafræði (2004)
(38%)

Saga (2004)
(38%)

Þjóðfélagsfræði (2004)
(24%)

 

B) Náttúrufræði

 

 

28. þáttur

A) Enska

Við tökum fyrir þann hluta ensku prófsins frá því í fyrra sem reynir á skilning á rituðu máli og málnotkun. Við viljum vekja athygli á mörgum æfingum á enskusíðu Skólavefsins.

Skilningur á rituðu máli (2004)

Málnotkun (2004)

 

 

B) Stærðfræði

Við mælum með að nemendur skoði aftur þær spurningar sem þeir lentu í vandræðum með þegar þeir æfðu sig á eldri samræmdum prófum og reyni sig á sambærilegar spurningum úr öðrum prófum.

Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk, sem nýtist mjög vel til undirbúnings fyrir prófin. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar.

 

C) Danska

Skilningur á rituðu máli var u.þ.b. 40% af dönskuprófinu árið 2004. Við mælum með að þeir sem eiga í erfiðleikum með að skilja textann fari á dönskusíðu Skólavefsins, en þar er að finna mikið af sögum á dönsku með orðskýringum á íslensku. Einnig er að finna á dönskusíðunni góðar málfræðiæfingar og upplestur á dönsku.

Samræmt próf - 2004 - Danska

 

40% af prófinu.

D) Samfélagsfræði

Við tökum fyrir bls. 12-25 í 4. hefti í landafræði og þriðja heftið í sögu. Efnið er unnið upp úr inntakstöflu sem Námsmatsstofnun gaf út fyrir prófin og hefur það fengið mjög góðar viðtökur og er talið mjög gagnlegt til undirbúnings fyrir prófin.

Efni vikunnar.

Klára hluta 4

Frá LIV. HLUTI: SVÆÐI á bls. 12.

Landafræðisíða

 

Efni vikunnar.

Allt 3. hefti

27. þáttur

A) Íslenska

Við mælum með að þú farir vel yfir prófið frá því í fyrra. Þá viljum við minna á íslenskusíðu Skólavefsins og stafsetningar- og málfræðisíðu Skólavefsins en þar er að finna mikið af góðu þjálfunarefni.

Stafsetning (2004)

Hlustun (2004)

Ritun (2004)

Málfræði (2004)

Bókmenntir, lestur og hlustun (2004)

 


B) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk, sem nýtist mjög vel til undirbúnings fyrir prófin. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í þessari viku í gegnum seinni hluta prófsins frá árinu 2001.

 

C) Náttúrufræði
Náttúrufræðiprófið frá árinu 2003 skiptist í þrjá hluta: eðlisvísindi, lífvísindi og jarðvísindi. Árið 2003 var vægi eðlisvísinda 44%, lífvísinda 44% og jarðvísinda 12%. Við mælum með að skrifa niður þær spurningar sem þú lendir í erfiðleikum með og fara vel yfir þær fyrir prófið.

 

 

D) Samfélagsfræði
Við tökum fyrir bls. 1-10 í 4. hefti í landafræði og annað heftið í sögu. Efnið er unnið upp úr inntakstöflu sem Námsmatsstofnun gaf út fyrir prófin og hefur það fengið mjög góðar viðtökur og er talið mjög gagnlegt til undirbúnings fyrir prófin.

Efni vikunnar. Bls. 1-11

Að LIV. HLUTI: SVÆÐI

Landafræðisíða

 

Efni vikunnar.

Allt 2. hefti (12 bls.)

26. þáttur

A) Samfélagsfræði
Við tökum fyrir bls. 9-20 í 3. hefti af 4 í landafræði og fyrsta heftið í sögu. Efnið er unnið upp úr inntakstöflu sem Námsmatsstofnun gaf út fyrir prófin og hefur það fengið mjög góðar viðtökur og er talið mjög gagnlegt til undirbúnings fyrir prófin.

Efni vikunnar. Bls. 9-20

Frá endurnýjanlegar og óendurnýjanlegar auðlindir

Landafræðisíða

 

Efni vikunnar.

Allt 1. heftið.

B) Íslenska
Við höldum áfram að æfa okkur á kyni, tölu og falli nafnorða. Við viljum vekja athygli á Stafsetningar- og málfræðisíðu Skólavefsins, en þar er að finna margar góðar æfingar.

 

Stafsetningar- og málfræðisíðan

C) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í þessari viku í gegnum seinni hluta prófsins frá árinu 2002.

 

D) Náttúrufræði
Náttúrufræðiprófið skiptist í þrjá hluta: eðlisvísindi, lífvísindi og jarðvísindi. Árið 2002 var vægi lífvísinda 48%, jarðvísinda 4% og vægi eðlisvísinda 48%. Fyrr í þjálfunarprógramminu skoðuðum við eðlisvísindahlutann í prófinu frá 2002 og nú er komið að lífvísindum og jarðvísindum.

 

 

25. þáttur

A) Danska

Skilningur á rituðu máli var u.þ.b. 45% af dönskuprófinu árið 2002. Við mælum með að þeir sem eiga í erfiðleikum með að skilja textann fari á dönskusíðu Skólavefsins, en þar er að finna mikið af sögum á dönsku með orðskýringum á íslensku.

Samræmt próf - 2002 - Danska

 

45% af prófinu.

B) Samfélagsfræði
Við tökum fyrir bls. 1-9 í 3. hefti af 4 sem unnið er upp úr inntakstöflu í landafræði sem Námsmatsstofnun gaf út fyrir prófin. Þetta efni hefur fengið mjög góðar viðtökur og er talið mjög gagnlegt til undirbúnings fyrir prófin.

  • 3. hluti
    Loftslagsbelti jarðar, mikilvægi og nýting vatnsorku og jarðhita á Íslandi, hafstraumar, mengun og mengunarvarnir

Efni vikunnar. Bls. 1-9

Fram að endurnýjanlegar og óendurnýjanlegar auðlindir

Landafræðisíða

C) Íslenska
Undanfarin ár hefur málfræði verið u.þ.b. 35% af íslenskuprófinu. Við æfum okkur í þessari viku á kyni, tölu og falli nafnorða. Við viljum vekja athygli á Stafsetningar- og málfræðisíðu Skólavefsins, en þar er að finna margar góðar æfingar.

 

Stafsetningar- og málfræðisíðan

D) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í þessari viku í gegnum seinni hluta prófsins frá því í fyrra.

 

24. þáttur

A) Íslenska

Við skoðum hlustunarhluta samræmda prófsins í íslensku frá árinu 2002 og stafsetningarhluta prófsins frá árinu 2004. Við viljum minna á mikið af upplesnum textum á íslenskusíðu Skólavefsins og margar málfræði og stafsetnignaræfingar á Stafsetningar- og málfræðisíðu Skólavefsins.

6% af prófinu

15% af prófinnu

B) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í þessari viku í gegnum 3. hluta af þremur úr prófinu frá því árinu 2003.

 

C) Enska
Við tökum fyrir þann hluta ensku prófsins frá því í fyrra sem reynir á skilning á mæltu máli. Vægi hans var 25%. Við viljum minna á hlustunaræfingar á enskusíðu Skólavefsins.

Samræmt próf - 2004: Skilningur á mæltu máli

25% af prófinu

 

23. þáttur

A) Danska

Skilningur á rituðu máli var u.þ.b. 45% af dönskuprófinu árið 2003. Við mælum með að þeir sem eiga í erfiðleikum með að skilja textann fari á dönskusíðu Skólavefsins, en þar er að finna mikið af sögum á dönsku með orðskýringum á íslensku.

Samræmt próf - 2003 - Danska

45% af prófinu.

B) Íslenska

Við skoðum stafsetningar- og hlustunarhluta samræmda prófsins í íslensku frá árinu 2003. Þá æfum við okkur í fallbeygingu nafnorða, en þær æfingar og fleiri má finna á Stafsetningar- og málfræðisíðu Skólavefsins.

Stafsetning: 15% af prófinu

Hlustun: 10% af prófinnu

 

C) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 2. hluta af þremur úr prófinu frá því árið 2003.

 

22. þáttur

A) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við margar spurningar er einnig tenging í vídeóskýringar. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 2. hluta prófsins frá því í fyrra, en prófinu höfum við skipt upp í fjóra hluta.

 

B) Náttúrufræði
Við tökum fyrir fyrri hluta sjúkraprófsins frá árinu 2002 í náttúrufræði. Í fyrri hluta prófsins er spurt úr eðlisvísindum.

 


C) Danska

Samræmt próf - 2003 - Danska

30% af prófinu.

21. þáttur

A) Danska
U.þ.b. fjórðungur af dönsku prófinu er skilningur á mæltu máli, en það hefur reynst mörgum nemendum erfitt. Í þessari viku skoðum við þennan þátt prófsins frá því í fyrra. Fyrir þá sem vantar meiri æfingu í að hlusta á dönsku mælum við með að hlusta á söguna Rejsen med guderne sem er að finna á Skólavefnum.

 

B) Enska
Við tökum fyrir skilning á rituðu máli í þessari viku og hefur þessi hluti prófsins vegið u.þ.b. 40% síðastliðin ár.

 

C) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 1. hluta prófsins frá því í fyrra.

 

20. þáttur

A) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 1. hlutann í sýnisprófinu fyrir samræmda prófið árið 2003.

 

B) Enska
Hátt í 40% af samræmda prófinu reynir á skilning á rituðu máli. Við æfum okkur í þessari viku á þessum hluta prófsins frá árinu 2002.

 


C) Samfélagsfræði
Í þessari viku tökum við fyrir bls. 17-21 í hefti sem hugsað er til yfirferðar fyrir samræmdu prófin í samfélagsfræði. Efnið er unnið samkvæmt lista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Efni vikunnar. Bls. 17-21


19. þáttur

A) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 1. hlutann í samræmda prófinu frá árinu 2001.

 

B) Samfélagsfræði
Í þessari viku tökum við fyrir bls. 9-16 í hefti sem hugsað er til yfirferðar fyrir samræmdu prófin í samfélagsfræði. Í þessum hluta er fjallað um landmótun, þróun yfirborðs jarðar, útræn og innræn öfli. Efnið er unnið samkvæmt lista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Efni vikunnar. Bls. 9-16


C) Íslenska
U.þ.b. fjórðungur af íslenskuprófinu reynir á lesskilning. Í dag lesum við Auðunar þátt vestfirska. Ef þú skilur ekki orð í textanum geturðu farið með músarbendlinum yfir orðið og sérðu þá útskýringu á því. Þátturinn er í 4 köflum. Neðst á hverri síðu eru gagnvirkar spurningar úr kaflanum. Kaflinn er einnig til útprentunar og þar eru fleiri spurningar.

Auðunar þáttur vestfirska

Vefútgáfa

Til útprentunar

 

 

18. þáttur

A) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Við mælum með að nemendur fari í gegnum 1. hlutann í samræmda prófinu frá árinu 2002.

 

B) Íslenska

 


C) Samfélagsfræði
Í þessari viku tökum við fyrir bls. 4-8 í hefti sem hugsað er til yfirferðar fyrir samræmdu prófin í samfélagsfræði. Í þessum hluta er fjallað um sólkerfið, göngu jarðar og tungls, árstíðaskipti, sólarhæð, og dægraskipti. Efnið er unnið samkvæmt lista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Efni vikunnar. Bls. 4-8


17. þáttur

A) Enska
Í síðustu viku lásum við fyrri hlutann af Róbinson Crúsó. Hér er á ferðinni stytt útgáfa af þessari þekktu sögu. Með því að fara með músarbendlinum yfir orð geta nemendur séð þýðingu á því og hægt er að hlusta á söguna lesna upp á ensku. U.þ.b. 40% af prófinu reynir á skilning á rituðu máli og 20% á skilningu á mæltu máli. Kaflinn er því góð þjálfun fyrir samræmda prófið.

 

B) Stærðfræði
Við bjóðum upp á nýjungu í framsetningu stærðfræðiprófa fyrir 10. bekk. Hún felst í því að við hverja spurningu eru tengingar í sambærilegar spurningar úr öðrum samræmdum prófum. Með þessu móti geta nemendur sem lenda í vandræðum með eitthvað dæmi æft sig á fleiri svipuðum dæmum. Þá höfum við einnig útbúið vídeóútskýringar með öllum tegundum af dæmum sem birtast í prófunum. Ef smellt er á tengil getur nemandi horft á það hvernig þannig dæmi er leyst og hlustað á útskýringar. Við byrjum á að setja 1. hlutann í stærðfræðiprófinu frá árinu 2003 fram með þessum hætti. Við höfum útbúið vídeóleiðbeiningar sem við mælum með að skoðaðar séu fyrst.

 

Vídeóleiðbeiningar

C) Samfélagsfræði
Fyrir nokkru tókum við fyrir 1. hefti til undirbúnings fyrir samræmda prófið í samfélagsfræði. Nú er komið að 2. hefti og mælum við með að nemendur fari í gegnum fyrstu 3 bls. Í þessum hluta er m.a. fjallað um landrek, en það var einmitt við landrek sem hinir hörmulegu atburðir urðu í Indlandshafi rétt fyrir áramótin. Efnið er unnið samkvæmt lista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Efni vikunnar. Fyrstu 3 bls.


 

 

16. þáttur

A) Stærðfræði
Við reynum okkur í þessari viku á fyrra hefti í samræmd prófinu í stærðfræði frá árinu 2000.

 

B) Enska
Stór hluti af ensku prófinu (u.þ.b. 40%) er skilningur á rituðu máli. Það er því gott til undirbúnings fyrir ensku prófið að lesa sem mest. Við á Skólavefnum gerum lesturinn mun auðveldari með orðskýringum, þannig að það þarf einungis að fara með músarbendlinum yfir orð til að fá þýðingu á því. Við skoðum fyrri hluta af styttri útgáfu af Robinson Cruso. Eftir lesturinn leysið verkefni neðst og hægra megin á síðunni. Kaflinn er upplesinn á ensku, en u.þ.b. 20% af prófinu er skilningur á mæltu máli. Við mælum því með að hlusta á kaflann.

 

C) Náttúrufræði
Jarðvísindahlutinn verður líklega u.þ.b. 10-15 % af prófinu. Við skoðum jarðvísindahlutann í sýnisprófi frá árinu 2003

 

 

15. þáttur

A) Íslenska
U.þ.b. fjórðungur af íslenskuprófinu reynir á lesskilning. Reyndu að átta þig á uppbyggingu prófanna og skrifaðu hjá þér þau atriði sem þér gengur illa með.

Bókmenntir, lestur og hlustun (2003)
(25%)

 

B) Samfélagsfræði
Í síðustu tókum við fyrir fyrri helming 1. heftis til undirbúnings fyrir samræmda prófið í landafræði og í þessari viku tökum við fyrir seinni hlutann. Efnið er unnið samkvæmt lista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Farið yfir heftið frá Tímakerfi á bls. 12. Þeir sem ekki fóru yfir efni síðustu viku, ráðleggjum við að byrja frá byrjun.


C) Danska
Það er komið að næst síðasta skammtinum af órgeglulegum sögnum í dönsku. Við höfum nú æft okkur á fyrstu 100 sögnunum og hvetjum við nemendur til að rifja þær upp áður en þeir reyna sig við efni dagsins. Við bjóðum upp á tvær útgáfur af óreglulegum sögnum. Í fyrri útgáfunni á að velja rétta mynd sagna af valkostum sem birtast í felliglugga. Í seinni útgáfunni eiga nemendur sjálfir að skrifa sagnirnar. Gott er að byrja á fyrri útgáfunni og fara svo í seinni útgáfuna.

Tenging í allar óreglulegar sagnir


Sagnir 101-110

14. þáttur

A) Danska
Við höldum áfram með óreglulegar sagnir í dönsku. Við höfum nú æft okkur á fyrstu 90 sögnunum og hvetjum við nemendur til að rifja þær upp áður en þeir reyna sig við efni dagsins. Við bjóðum upp á tvær útgáfur af óreglulegum sögnum. Í fyrri útgáfunni á að velja rétta mynd sagna af valkostum sem birtast í felliglugga. Í seinni útgáfunni eiga nemendur sjálfir að skrifa sagnirnar. Gott er að byrja á fyrri útgáfunni og fara svo í seinni útgáfuna.

Tenging í allar óreglulegar sagnir


Sagnir 91-100

B) Stærðfræði
Við tökum fyrir fyrri hluta stærðfræðiprófsins annars vegar frá árinu 2000 og hins vegar 2001. Fyrri hefti prófsins frá 2001 og höfum við skipt upp í tvo hluta.

Samræmt próf í stærðfræði


C) Samfélagsfræði
Við mælum með að nemendur fari yfir u.þ.b. helming 1. heftis til undirbúnings fyrir samræmda prófið í landafræði í þessari viku. 1. hefti nefnist ,,Landakort, loftmyndir og landupplýsingar" og er unnið samkvæmt atriðalista sem Námsmatsstofnun sendi frá sér í fyrra yfir atriði sem gagnlegt er að kunna fyrir prófin.

Lesið fyrstu 11 bls. Út að kaflanum Tímakerfi á bls. 12.


13. þáttur

A) Samfélagsfræði

 

B) Enska

Í efni dagsins eigið þið að horfa og hlusta á stutt myndbönd og svara spurningum úr því jafnóðum.

 

C) Danska

Við ljúkum sögunni Rejsen med guderne í dag, en sagan er tilvalin til að þjálfa bæði orðaforða og skilning á mæltu máli. Góðar spurningar fylgja.


Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

12. þáttur

A) Náttúrufræði

Gott kennsluefni er að finna á:

Eðlisfræði

B) Danska

Nú er komði að næst síðasta kaflanum í Rejsen med guderne, en sagan er tilvalin til að þjálfa bæði orðaforða og skilning á mæltu máli. Góðar spurningar fylgja.


Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

C) Samfélagsfræði

 

11. þáttur

A) Náttúrufræði


Eðlisvísindi eru tæplega helmingur af prófinu í náttúrufræði.

B) Danska


Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

C) Íslenska

1) Samræmt próf - málfræði - 2002 (35 stig)

2) Samræmt próf - málfræði - 2003 (35 stig)

U.þ.b. þriðjungur af íslenskuprófinu er málfræði. Reyndu að átta þig á uppbyggingu prófanna og skrifaðu hjá þér þau atriði sem þér gengur illa með.

10. þáttur

A) Enska

  • Samræmt próf frá árinu 2003 - Skilningur á mæltu máli

Í u.þ.b. 20% af samræmda prófinu í ensku er prófað úr skilningi á mæltu máli. Hér skoðum við hlustunarhluta prófsins frá árinu 2003.

Í þessari hlustunaræfingu lýsir Carrie heimili sínu. Í lok æfingarinnar á nemandi að svara völdum spurningum.

B) Danska

Við höldum áfram með dönsku framhaldssöguna sem þjálfar bæði orðaforða og hlustun og svo óreglulegar sagnirnar.

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Við erum nú komin að óreglulegum sögnum 71-80. Gott er að fara fyrst yfir sagnir 1-70. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

9. þáttur

Íslenska

20-25% af prófinu reynir á skilning á rituðu máli. Við skoðum lesskilningshluta prófanna frá árunum 2001 og 2002.

 

 

8. þáttur

A) Enska

Hluti af prófinu í ensku reynir á skilning á mæltu máli. Við horfum á myndband þar sem ensk kona segir frá íbúðinni sinni. Eftir að hafa horft á myndbandið svörum við spurningumúr textanum. Því næst reynum við okkur á hlustunarhluta ensku prófsins frá árinu 2001.

 

B) Danska

Við höldum áfram með dönsku framhaldssöguna sem þjálfar bæði orðaforða og hlustun og svo óreglulegar sagnirnar.

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Við erum nú komin að óreglulegum sögnum 61-70. Gott er að fara fyrst yfir sagnir 1-60. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

 

7. þáttur

A) Samfélagsfræði

Í síðustu viku lásum við um Jón Sigurðsson. Við mælum með að þú byrjir að rifja upp það sem þú last þá og lesir síðan kaflann Sjálfstæðisbaráttan til Heimastjórnar. Aftast eru spurningar sem þú átt að svara.

Fyrir þá sem vilja sökkva sér dýpra ofan í tímabilið mælum við með að skoða Heimastjórnarvef Skólavefsins.

B) Danska

Við höldum áfram með dönsku framhaldssöguna sem þjálfar bæði orðaforða og hlustun og svo óreglulegar sagnirnar.

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Við erum nú komin að óreglulegum sögnum 51-60. Gott er að fara fyrst yfir sagnir 1-50. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

 

6. þáttur

A) Enska

 

B) Samfélagsfræði

Fyrir prófið í samfélagsfræði þurfa nemendur að kunna góð skil á ævi Jóns Sigurðssonar og á sjálfstæðisbaráttunni. Við mælum með að nemendur lesi vel umfjöllun um Jón og svari spurningum aftast.

Þeir sem vilja sökkva sér dýpra ofan í tímabilið mælum við með að þeir skoði Heimastjórnarvef Skólavefsins.

C) Danska

Við höldum áfram með dönsku framhaldssöguna sem þjálfar bæði orðaforða og hlustun og svo óreglulegar sagnirnar.

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Við erum nú komin að óreglulegum sögnum 41-50. Gott er að fara fyrst yfir sagnir 1-40. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

 

5. þáttur

A) Enska

Lesskilningur var 40 % af prófinu í ensku árið 2002. Búast má við að vægi lesskilnings verði svipað á prófinu í vor.

 

B) Íslenska

Við tökum fyrir stafsetningaræfingar frá árunum 2000 og 2001.

 

C) Danska

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Æfðu þig í fyrstu 40 óreglulegu sögnunum. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

4. þáttur

A) Náttúrufræði

Í þessari viku förum við yfir mjög vandað efni eftir Benedikt Pál Jónsson kennara í eðlis- og efnafræði.

Lotukerfið
Á vef
Til útprentunar

 
Hamskipti
Á vef
Til útprentunar
 

B) Stærðfræði

Við æfum okkur á nokkrum dæmum í tölfræði. Miklar líkur eru á því að á prófinu verði spurt um meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi og því gott að læra það vel.

 

C) Danska

Við höldum áfram með söguna Rejsen med guderne sem er eftir Vilhjálm Gíslason og í þessari viku er það 4. kaflinn. Sagan reynir á mörg atriði sem verður prófað úr í samræmdu prófunum, t.d. lesskilningi, skilningi á mæltu máli og málfræði. Nemendur eiga að lesa kaflann vandlega yfir og hlusta á upplestur á dönsku sem fylgir kaflanum. Neðst á síðunni eru spurningar sem nemendur eiga að svara eftir að hafa lesið kaflann vel yfir, annað hvort á ritvinnsluskjal eða blað og að lokum svara tveimur gagnvirkum æfingum. Í kynningarmyndbandinu er farið yfir það hvernig á að vinna með kaflann.

Á síðustu tveimur vikum höfum við farið yfir fyrstu 20 óreglulegu sagnirnar í dönsku. Við höldum áfram með óreglulegu sagnirnar og reynum okkur nú á fyrstu 30 .

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Æfðu þig í fyrstu 30 óreglulegu sögnunum. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

3. þáttur

Í þessari viku tökum við fyrir efni í íslensku, stærðfræði og dönsku.

A) Íslenska

1) Samræmt próf - málfræði - 2001 (35 stig)

2) Samræmt próf - málfræði - 2000 (30 stig)

U.þ.b. þriðjungur af íslenskuprófinu er málfræði. Reyndu að átta þig á uppbyggingu prófanna og skrifaðu hjá þér þau atriði sem þér gengur illa með.

B) Stærðfræði

3) Hornafræði - æfing 1

4) Hornafræði - æfing 2

Við skoðum tvær æfingar í hornafræði í stærðfræði. Skrifaðu hjá þér þær spurningar sem þú svaraðir ekki rétt og reyndu að átta þig á því hvers vegna.

C) Danska

Við höldum áfram með 3. kafla í sögunni Rejsen med guderne sem er eftir Vilhjálm Gíslason. Sagan reynir á mörg atriði sem verður prófað úr í samræmdu prófunum, t.d. lesskilningi, skilningi á mæltu máli og málfræði. Nemendur eiga að lesa kaflann vandlega yfir og hlusta á upplestur á dönsku sem fylgir kaflanum. Neðst á síðunni eru spurningar sem nemendur eiga að svara eftir að hafa lesið kaflann vel yfir, annað hvort á ritvinnsluskjal eða blað og að lokum svara tveimur gagnvirkum æfingum. Í kynningarmyndbandinu er farið yfir það hvernig á að vinna með kaflann.

Í síðustu viku fórum við yfir fyrstu 10 óreglulegu sagnirnar í dönsku. Við höldum áfram með þær og reynum okkur nú á fyrstu 20 sögnunum.

5) Danska - 10 . b. - samræmdu
Rejsen med guderne - 3. kafli

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

6) Óreglulegar sagnir í dönsku: 1-20 fjölvalsspurningar

7) Óreglulegar sagnir í dönsku: 1-10 eyðufyllingar

8) Óreglulegar sagnir í dönsku: 11-20 eyðufyllingar

Æfðu þig á fyrstu 20 óreglulegu sögnunum. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

2. þáttur

Í þessari viku tökum við fyrir efni í náttúrufræði, ensku og dönsku.

1) Náttúrufræði

Við mælum með því að nemendur fari yfir eðlisfræðiefni sem unnið er af Benedikt Páli Jónssyni kennara í Hagaskóli. Við skoðum annars vegar rúmmál hluta og hins vegar eðlismassa.

 

2) Enska

Í ensku tökum við fyrir 20% af samræmda prófinu frá árinu 2002, þar sem prófað er úr skilningi á mæltu máli.

 

3) Danska

Við höldum áfram með 2. kafla í sögunni Rejsen med guderne sem er eftir Vilhjálm Gíslason. Sagan reynir á mörg atriði sem verður prófað úr í samræmdu prófunum, t.d. lesskilningi, skilningi á mæltu máli og málfræði. Nemendur eiga að lesa kaflann vandlega yfir og hlusta á upplestur á dönsku sem fylgir kaflanum. Neðst á síðunni eru spurningar sem nemendur eiga að svara eftir að hafa lesið kaflann vel yfir, annað hvort á ritvinnsluskjal eða blað og að lokum svara tveimur gagnvirkum æfingum. Í kynningarmyndbandinu er farið yfir það hvernig á að vinna með kaflann.

Við förum yfir fyrstu 10 óreglulegu sagnirnar í dönsku.

Forsíða sögunnar:
Rejsen med guderne

Æfðu þig í fyrstu 10 óreglulegu sögnunum. Við bjóðum upp á tvær æfingar. Í fyrri æfingunni eru fjölvalsspurningar og í þeirri seinni eyðufyllingar. Leiðbeiningarvídeó fylgir æfingunum.

1. þáttur

1) Stærðfræði
Við byrjum á að skoða nokkur dæmi um flatarmál og ummál hrings, en búast má fastlega við að svoleiðis dæmi komi á prófinu í vor. Við vekjum athygli á vídeóútskýringum með dæmunum sem sýna hvernig þau eru leyst. Smellið einfaldlega á tengilinn fyrir neðan spurningarnar til að sjá útskýringarnar.

Ummál og flatarmál hrings

 

2) Danska
Fyrsti kafli í skemmtilegri sögu eftir Vilhjálm Gíslason “Rejsen með guderne”. Sagan reynir á mörg atriði sem verður prófað úr, t.d. lesskilningi, skilningi á mæltu máli og málfræði. Nemendur eiga að lesa kaflann vandlega yfir og hlusta á upplestur á dönsku sem fylgir kaflanum. Neðst á síðunni eru spurningar sem nemendur eiga að svara eftir að hafa lesið kaflann vel yfir, annað hvort í ritvinnsluskjali í tölvunni eða á blaði. Að lokum eru tvær stuttar gagnvirkar æfingar. Þá höfum við útbúið kynningarmyndband á dönskuæfingunni sem gott er að skoða áður.

 

 

 

 

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is