Bækur Kennsluefni til útprentunar Gagnvirkt efni Ítarefni Lýsing
Nýjung í námi - Steinsmíði fyrir 1.-10. bekk

Kennarar í smíði og upplýsingatækni eru sífellt að leita að nýjum og skemmtilegum viðfangsefnum fyrir nemendur sína. Að vinna með grjót eða steina á markvissan og skemmtilegan hátt er nokkuð sem ekki hefur verið gert mikið af, en býður upp á mikla og fjölbreytta möguleika sem vert er að kynna sér. Í dag bjóðum við upp á skemmtilega nýjung í námi eftir Árna Jón Hannesson kennara við Varmárskóla í Mosfellsbæ. Eru það leiðbeiningar um hvernig hægt er að nota skrautsteina á áhugaverðan hátt í kennslu. Eru leiðbeiningarnar skýrar og ljósar í framsetningu og hvetjum við alla til að kynna sér þær vel, því þar sem þetta hefur verið reynt hefur það vakið stormandi lukku.

Námskeið í steinsmíði

Rétt er að vekja athygli á því að ef þið hafið einhverjar spurningar um efnið getið þið haft samband við höfundinn Árna Jón Hannesson kennara við Varmárskóla í Mosfellsbæ. Þá er Árni reiðubúinn að halda námskeið fyrir þá sem það vilja þar sem hann mun kynna ykkur fyrir fleiri möguleikum. Þeir sem hafa áhuga á því geta sent okkur póst á veffangið skolavefurinn@skolavefurinn.is eða haft samband beint við Árna á veffanginu: arnijon1@simnet.is eða í síma 6962023.

 

 

 

Steinsmíði fyrir 1.-10. bekk

 


 



 

Efni eftir Árna Jón Hannesson

 

 
Bækur Kennsluefni til útprentunar Gagnvirkt efni Ítarefni Lýsing
Málmsmíði

 

 

 

 

 



Kennarahandbók

42 blaðsíður

Nemendahefti

25 blaðsíður



 

Heildstætt kennsluefni í málmsmíði eftir Egil Þór Magnússon kennara við Borgarholtsskóla. Fjöldi verkefna prýðir efnið eins og t.a.m. hvernig búa á stand fyrir GSM síma, eirstunga og verkfærakista svo eitthvað sé nefnt. Þá er fjallað ítarlega um öryggisþætti, verkfæri, kennslustofuna o.s.frv. Þó svo að verkefnið hafi verið samið með nemendur sérdeildar Borgarholtsskóla í huga, hentar það einnig vel í efstu bekkjum grunnskólans, og hefur verið kennt þar með góðum árangri.

 

 
Bækur Kennsluefni til útprentunar Gagnvirkt efni Ítarefni Lýsing
Hönnun og tæknimennt

 

 


blað 1

blað 2



hönnun 1

hönnun 2

hönnun 3



 

Efni eftir Árna Jón Hannesson

 

 

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is