Aðsendar greinar
Bækur Kennsluefni til útprentunar Gagnvirkt efni Ítarefni Lýsing

Glætan

Glætan er nýtt fjölskyldutímarit sem hugsað er fyrir börn á öllum aldri og er öðruvísi en önnur tímarit. Og þá meinum við öðruvísi! Hér er nefnilega boðið upp á skemmtiefni, fróðleik, föndur og margvíslegt þjálfunarefni í bland og allt þar á milli og það sem meira er þá er hægt að njóta ritsins bæði rafrænt og/eða prenta það út eins og hefðbundið tímarit. Þó er þægilegra að prenta það út ef ætlunin er að vinna verkefnin. Meginmarkmið okkar með þessu tímariti er einfalt. Það er að gera fróðleiksöflun markvissa, skemmtilega og áhugaverða, því þannig á það að vera. Fátt þykir börnum skemmtilegra en að taka þátt í einhverjum leik eða keppni sem byggir á einhverri ákveðinni færni. Þannig ætti það einnig að vera með þekkinguna, þ.e. að hún sé eftirsóknarverð vegna þess að það er gaman að vinna með hana. Ritið er líka hugsað sem nokkurs konar fjölskyldusamvera, og því má segja að stundum sé hlaupið á milli þroskastiga í verkefnunum. Þá er hugmyndin að fjölskyldan vinni saman að lausnum.

 

1. tölublað
2. tölublað
3. tölublað
4. tölublað
5. tölublað
6. tölublað
7. tölublað
8. tölublað
9. tölublað



Glætan

(á vef)



   

Hvergelmir

Hér er á ferðinni skemmtitímarit fyrir alla fjölskylduna með fjölbreyttu úrvali af sögum og alls kyns fróðleik, auk margs annars. Upplagt er að prenta það út og hafa með í fríið, nú eða bara lesa úti á svölum í sólinni. Góða skemmtun.

 



Hvergelmir

(á vef)



   

Sögur og smælki

Þetta tímarit er hugsað sem nokkurs konar afþreyingarefni í sumarfríið, en um leið eitthvað sem hreyfir við huganum. Við höfum lagt áherslu á að gera efnið þannig úr garði að það geti höfðað til sem flestra, óháð aldri. Boðið er upp á valdar sögur frá fyrri tíð, bæði barnasögur og aðrar. Þá tínum við inn efni úr eldri bókum sem við teljum að eigi erindi inn í samtíðina, s.s. bók Ólafs Ólafssonar frá Guttormshaga, Hjálpaðu þér sjálfur (útg. 1892). Var hún á sínum tíma gríðarlega vinsæl og þó svo að tímarnir séu aðrir er efnið sígilt. Í hverju hefti munum við svo bjóða upp á pistil eftir Matthías Johannessen, en þeir pistlar eru fengnir úr bókinni Við Kárahnjúka og önnur kennileiti - Helgispjall (útg. 1999) og hafa ekki verið aðgengilegir almenningi fram að þessu. Einnig má hér finna alls kyns styttri fróðleiksmola, s.s. eftir Þorvald Thoroddsen náttúrufræðing og Boga Melsted sagnfræðing, sem og ljóðaþætti, þjóðsögur og margt fleira. Er það von okkar að efnið falli í góðan jarðveg og tímaritið eigi eftir að skemmta fólki og fræða í sömu andrá. Njótið heil.

 



Sögur og smælki

(á vef)



   

 

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is