Forsíða Jarðvísindi Danska Stærðfræði Enska Íslenska Lífvísindi Saga Eðlisvísindi Landafræði Þjóðfélagsfræði

Stuðningsþjálfun fyrir samræmdu prófin í 10. bekk

Eins og allir vita þreyta nemendur í 10. bekk svokölluð samræmd próf þegar fer að nálgast lok námsársins. Er þar um sex próf að ræða, dönsku, ensku, íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði og stærðfræði. Geta nemendur valið um hvaða próf þeir þreyta, en taka verður tillit til þess að útkoma á prófunum getur haft úrslitavald um möguleika nemandans á að velja sér framhaldsnám og skóla.

Í prófunum er almenn þekking í umræddum námsgreinum könnuð sem tekur mið af því sem nemendur eiga hafa lært frá því í 8. bekk. Er hér um umtalsvert námsefni að ræða og því mikilvægt að nemendur séu skipulagðir í námi sínu ef þeir vilja tryggja góðan árangur.

Skólavefurinn býður í vetur upp á það sem við köllum stuðningsþjálfun, eða stuðningsprógramm til að hjálpa nemendum að halda utan um nám sitt og búa sig betur undir umrædd próf. Ætlum við að reyna að hafa það í hverri námsgrein, en það verður að koma í ljós hvort við náum því.

Við viljum vekja athygli á því að námskeiðin eru ólík hvert öðru, en það miðast einkum við það efni sem við höfum úr að spila í hverri námsgrein hverju sinni. Eitt eiga námskeiðin þó sameiginlegt, en það er að farið er yfir prófspurningar í viðkomandi námsgreinum skipulega og í hentugum einingum.

Grunnuppbygging námskeiðanna felur í sér að nemendum er boðið upp á að vinna 20 - 30 stuttar kennslustundir í hverri námsgrein, sem samanstanda af prófeiningum úr eldri samræmdum prófum, svo og öðrum æfingum. Samfara æfingunum geta nemendur sótt í valdar skýringar í ákveðnum atriðum og/eða annað lesefni.

Rétt er að taka það fram að hér er ekki um neina töfralausn að ræða og við lofum engu um árangurinn á prófunum sjálfum, en það er þó trú okkar að skipulagning af þessu tagi hljóti að gera gagn og hjálpa nemendum að bæta árangur sinn.

Þá er ekki úr vegi að geta þess að undanfarið hefur Skólavefurinn boðið upp á slíkt þjálfunarprógramm í einfaldari mynd og höfðu margir á orði að það hefði komið þeim að góðum notum. Einnig hefur Skólavefurinn boðið upp á nokkuð ítarleg námskeið fyrir nemendur í 4. og 7. bekk, sem þreyta samræmd próf í íslensku og stærðfræði og hefur reynslan af þeim einnig verið mjög góð.

Eins og áður sagði skiptum við námskeiðunum sem í boði eru og skiptum þeim niður á daga þannig að ef nemendur ákveða að fylgja öllum námsgreinunum, getur hist þannig á að þeir skoði fleiri en eina n+amsgrein á dag, en þó einungis lítið í hverri námsgrein, enda reynum við að hafa þetta stutt og meðfærilegt í alla staði.

Við ítrekum svo að hér er ekki um að ræða neina heildarlausn og má alls ekki vinnast á kostnað annars náms í skólanum eða bitna á heimavinnu. Þetta er einungis viðbót sem miðar að því að nemendur eigi betur með að skipuleggja sig.

Skólavefurinn.is

 

 

 

 

 

Skólavefurinn ehf.
skolavefurinn@skolavefurinn.is