![]() |
Um tímaritið Sumarið 2005 hóf Skólavefurinn útgáfu á vikulegu tímariti sem innihélt valdar sögur og greinar, auk ýmiss konar fróðleiks úr fortíðinni, þar sem saman fór efni fyrir börn og fullorðna. Var þetta hugsað sem nokkurs konar afþreyingarefni í sumarfríið, en um leið eitthvað sem hreyfði við huganum. Efni sumarsins 2006 verður á margan hátt með svipuðu sniði og síðast, en þó einhverjar áherslubreytingar, sem svara vonandi til aukins þroska útgefenda. Áfram leggjum við áherslu á að gera efnið þannig úr garði að það geti höfðað til sem flestra, óháð aldri. Við verðum með valdar sögur frá fyrri tíð, bæði barnasögur og aðrar. Þá tínum við inn efni úr eldri bókum sem við teljum að eigi erindi inn í samtíðina, s.s. bók Ólafs Ólafssonar frá Guttormshaga, Hjálpaðu þér sjálfur (útg. 1892). Var hún á sínum tíma gríðarlega vinsæl og þó svo að tímarnir séu aðrir er efnið sígilt. Í hverju hefti munum við svo bjóða upp á pistil eftir Matthías Johannessen, en þeir pistlar eru fengnir úr bókinni Við Kárahnjúka og önnur kennileiti - Helgispjall (útg. 1999) og hafa ekki verið aðgengilegir almenningi fram að þessu. Einnig má hér finna alls kyns styttri fróðleiksmola, s.s. eftir Þorvald Thoroddsen náttúrufræðing og Boga Melsted sagnfræðing, sem og ljóðaþætti, þjóðsögur og margt fleira. Lesendur geta sem fyrr valið hvort þeir vilja lesa tímaritið beint af skjánum eða prenta það út og taka með sér í sumarfríið eða út á svalir á sólríkum degi, svo eitthvað sé nefnt. Er það von okkar að efnið falli í góðan jarðveg eins og síðast og tímaritið eigi eftir að skemmta fólki og fræða í sömu andrá. Gaman væri að fá viðbrögð við blaðinu, tillögur og uppástungur. Njótið heil. |
||||||||||||
2. árgangur 2006
|
||||||||||||
1. árgangur 2005
|
||||||||||||
Skólavefurinn ehf. |