Um þennan vef
Þessi vefur er fyrst og fremst hugsaður fyrir þá sem hafa áhuga á bragfræði og vilja læra grunnatriðin í því hvernig á að yrkja rímur.
Vefurinn samanstendur af stuttri kennslubók í sex köflum, en sjá má kaflaheitin á borðanum hér til vinstri. Þar getið þið einnig farið inn í viðkomandi kafla. Þá er einnig boðið upp á útprentanlegt verkefnahefti, stök útprentanleg verkefni og gagnvirkar æfingar. Þá höfum við einnig útbúið svarhefti við verkefnunum, þó slíkt hefti sé einungis hægt að nota með fyrirvara, því eins og þið vitið er hægt að setja saman vísu á ótal vegu með sama orðasafni. Eru svörin því einungis tillögur og dæmi um hvernig hægt er að fara að.
Síðast en ekki síst eru menn hvattir til að senda inn fyrirspurnir og verður öllum slíkum fyrirspurnum svarað af alúð og samviskusemi. Sérstaklega þætti umsjónarmanni gaman ef einhverjir eru að fást við að yrkja og vilja fá að vita hvort rétt sé kveðið eða hvað megi betur fara.
Já, heimur Braga getur verið mikið völundarhús, en ef leiðin er vel merkt ættu allir að rata út á endanum. Og þá fyrst fer þetta að verða virkilega skemmtilegt.
Rétt er að taka það fram að vefurinn er ennþá í vinnslu og er ætlunin að bæta við alls kyns verkefnum og upplýsingum með tíð og tíma. En svo eru líka allar ábendingar og tillögur vel þegnar.
