Tilkynning frá Skólavefnum
Verðið lækkar um þriðjung!
Við höfum nú kynnt Vanda málið vel og fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð við þessu nýja námsefni. Í raun eru mun fleiri skólar en við bjuggumst við tilbúnir að taka í kennslu þetta nýja íslenskuefni á miðstiginu. Þar sem skólar hafa mjög takmarkað fjármagn til þess að kaupa efni sem þetta fyrir höfum við lagt í mikla vinnu við að reyna að lækka verðið enn frekar frá því lága verði sem við lögðum upp með. Höfundar efnisins hafa breytt skipulagi bókanna þannig að í stað þriggja lesbóka og þriggja vinnubóka fyrir hvern árgang eru nú aðeins tvær af hvoru í hverjum árgangi. Verðið á lesbók og vinnubók saman verður áfram hið sama, eða 1490.-
Af því leiðir að nú kostar efnið sem dugar nemanda til alls íslenskunáms samkvæmt markmiðum aðalnámsskrár skólaárið á enda (2 lesbækur og 2 vinnubækur) aðeins: 2980.- kr.
Nýtt námsefni
Við höfum undanfarnar þrjár vikur verið að kynna Vanda málið, nýtt námsefni í íslensku fyrir miðstig, eftir þá Baldur Hafstað, Ingólf Kristjánsson, Þórð Helgason og Sigurð Konráðsson. Móttökurnar hafa verið vonum framar enda var ráðist í þessa útgáfu vegna eftirspurnar kennara eftir nýju námsefni í íslensku fyrir miðstig og er nú í fyrsta sinn í boði heildstætt námsefni í íslensku fyrir þennan aldurshóp.
Frábærar viðtökur
Efnið hefur fengið frábærar viðtökur, enda höfundarnir meðal þeirra fremstu á sínu sviði, aukaefnið óviðjafnanlegt og mikil vinna verið lögð í að tilraunakenna og laga efnið að þörfum nemenda og kennara. Frá upphafi hefur þó verið ljóst að margir skólar geti ekki keypt Vanda málið þó kennarar vilji gjarnan taka það inn og byrja að nota. Efnið samanstóð í upphafi af þremur lesbókum og þremur vinnubókum fyrir hvern árgang. Hver lesbók og vinnubók kosta saman 1490.- krónur þannig að heildarverðið á efninu fyrir hvern nemanda hefði verið 4470.- krónur.
Verðið lækkað um þriðjung
Eins og áður segir höfum við fundið fyrir gríðarlegum áhuga kennara á þessu efni og eru flestir skólastjórnendur og kennarar sem við höfum rætt við ósáttir við að hafa ekki frjálsari hendur um val á námsefni og munar þar mestu um fordæmaslausan niðurskurð á Námsgagnasjóði. Við höfum lagst í mikla vinnu seinustu vikur til þess að ná að lækka verðið (sem var þó lágt fyrir) enn meira. Nú er svo komið að höfundar Vanda málið hafa náð að endurvinna uppsetningu bókanna þannig að lesbækurnar og vinnubækurnar eru nú tvær í stað þriggja fyrir hvern árgang. Með því að stækka bækurnar og fækka þeim tekst okkur að lækka verðið um þriðjung. Lesbók og vinnubók kosta áfram 1490.- krónur saman og heildarverðið því 2980.- krónur fyrir efni sem dugar nemendum til alls íslenskunáms skólaárið á enda. Með þessum breytingum í uppsetningu er enginn afsláttur gefinn efnislega en kostnaður skólanna lækkar um þriðjung og við fögnum því að geta boðið vandað, skemmtilegt og nýstárlegt námsefni fyrir allt skólaárið á innan við þrjú þúsund krónur.
Ódýrt að endurnýja
Það er einnig ljóst að þeir fjölmörgu skólar sem eru að íhuga það að hefja kennslu á Vanda málið þurfa að horfa til lengri tíma en næsta skólaárs. Lesbækurnar endast í nokkur ár og því þarf aðeins að endurnýja vinnubækurnar á öðru árinu og verða þær mjög ódýrar í endurinnkaupum, kosta aðeins 590.- krónur. Stofnkostnaðurinn er því hærri fyrsta árið en eftir það kosta vinnubækurnar innan við helming af stofnkostnaðinum og með því að skoða verðið yfir tveggja ára tímabil er kostnaðurinn strax orðinn viðráðanlegri.

|