Coda er skammstöfun fyrir Children Of Deaf Adults; það eru börn heyrnarlausra foreldra. Alþjóðasamtök þessa hóps, CODA, halda árlegar ráðstefnur þar sem þau fagna persónueinkennum sem þau eiga sameiginleg og verða til við samruna heyrnarlausra og heyrandi persónueinkenna.
Coda-börn upplifa sig ekki öðruvísi en foreldrar sínir. Þau sjá engan mun og samsama sig foreldrum sínum. Frá sjónarhorni foreldranna eru heyrandi börnin heyrnarlaus vegna þess að þau samsama sig menningu heyrnarlausra. Þau eru talin heyrnarlaus nema að því leyti að þau hafa ekki reynslu af því að vera heyrnarlaus.
Coda-börn eru tvítyngd hvað mál og menningu varðar. En heyrandi samfélag lítur ekki á þau sem slík. Þetta kemur til vegna vanþekkingar beggja samfélaga á máli og menningu hvors annars. Coda-börn verða að samsama sig þessum tveimur menningarheimum sem oft getur valdið togstreitu hjá þeim.
Coda-börn verða oft túlkar/milligöngumenn á milli foreldra sinna og hins heyrandi heims. Því fylgir mikil ábyrgð sem ætti ekki að leggja á herðar þeirra.
Í gegnum tíðina hefur verið sett spurningarmerki við hvort heyrnarlausir foreldrar geti alið upp heyrandi börn. Þeim hefur verið ráðlagt að senda þau strax í talkennslu, þau hafa verið misgreind sem tornæm eða með málþroskavandamál. En reynslan sýnir hins vegar að svo er ekki. Heyrnarlausir eru færir um að ala upp heyrandi börn og skólayfirvöld hafa í auknum mæli tekið tillit til sérstöðu Coda-barna. Þá með sérkennslu í formi málörvunar eða sérkennslu af einhverjum toga.
Heyrnarlausar mæður kjósa oft að nota bæði tal og tákn við heyrandi börn sín. Þá verður til Coda-tal sem er sambland af táknum og tali. Fullorðið Coda-fólk telur það barnalegt, neikvætt og að ekki ætti að nota það utan veggja heimila. Þetta kallast heimamál og er oft ekki skiljanlegt öðrum.
Tjáskiptamöguleikar Coda-barna og fullorðinna:
- Notað eingöngu talmál
- Talað og notuð tákn samhliða
- Notað eingöngu táknmál
- Táknað og notuð döff rödd
- Notuð döff rödd án tákna
Coda-börn víða um heim halda hátíðlegan síðasta sunnudag í apríl ár hvert. Þá fagna þau uppruna sínum, deila reynslu sinni og kalla daginn Mömmu og pabba heyrnarlausa daginn (Mother father deaf day).
Til að fræðast meira um Coda-börn er bent á tvö þróunarverkefni sem leikskólinn Sólborg vann og er að finna á vef Menntamálaráðuneytis. Þau heita Gildi snemmtækrar íhlutunar fyrir heyrandi börn heyrnarlausra foreldra og Námsefnisgerð fyrir tvítyngd börn heyrnarlausra foreldra. |