Soffía Ámundadóttir
Nafnatákn
Nafnatáknið mitt

Ég heiti Soffía Ámundadóttir og er mikil áhugamanneskja um táknmál. Táknmáli kynntist ég árið 1999 á leikskólanum Sólborg sem er ráðgjafarleikskóli fyrir heyrnarlaus og heyrnarskert börn. Ég útskrifaðist sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1997, með B.A.-gráðu í táknmálsfræðum og táknmálstúlkun frá Háskóla Íslands 2005 og útskrifast í febrúar 2010 með B.Ed.-gráðu í  grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands.

Táknmálstengill minn hér á Skólavefnum er lokaverkefni mitt til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands. Lokaverkefnið er unnið undir handleiðslu Torfa Hjartarsonar lektors í kennslufræðum og upplýsingatækni við HÍ. Kann ég Torfa mínar bestu þakkir fyrir góða leiðsögn og hvatningu.

Tilgangur þessa lokaverkefnis er að gera grunninn í táknmáli aðgengilegan á netinu. Ég setti mig í samband við Skólavefinn sem gekk jákvæður til samstarfs við mig. Þetta samstarf hefur gengið mjög vel og er ætlunin að halda því áfram þegar þessu lokaverkefni er lokið. Táknmálstengillinn á eftir að stækka og dafna um ókomna tíð.

Margir réttu mér hjálparhönd við vinnslu þessa lokaverkefnis og er ég þeim afar þakklát. Eftirtaldir eru:

Höskuldur Örn Lárusson: Tölvuleikir
Helga Ægisdóttir: Táknabanki
Margrét Gígja Þórðardóttir: Táknabanki
Sindri Jóhannsson: Táknmál og ráðgjöf
Jónína Konráðsdóttir: Fagleg ráðgjöf
Hlöðver Kjartansson: Prófarkalestur

Verkefnið er styrkt af FSFH foreldra og styrktarfélag heyrnardaufra barna og Landsvirkjun.

Með von um að táknmálstengillinn nýtist sem flestum sem áhuga hafa á táknmáli.

Kær kveðja,

Soffía Ámundadóttir