Nýtt - Lestur og skilningur: Kötturinn og músin (3. stig)

Fyrir nokkru buðum við upp á sögu úr nýjum flokki sem við nefnum Lestur og skilningur. Verður þar boðið upp á valdar sögur til lestrar með góðum en jafnframt einföldum verkefnum. Eru verkefnin sem fylgja fjölbreytt og taka á ýmsum þáttum íslenskunnar. Efnið er flokkað í sex stig og verður hver og einn að finna það stig sem hentar best. Sagan sem við bjóðum upp á í dag er á 3. stigi og nefnist Kötturinn og músin.

Lesbrettabylting Skólavefsins

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga fórum við á Skólavefnum fyrir nokkru af stað með nýtt tilraunaverkefni í samvinnu við Vogaskóla þar sem við afhentum nemendum 9. bekkjar lesbretti sem þeim er ætlað að nota í íslensku í stað hefðbundinna bóka. Lesbretti hafa á undanförnum misserum verið að ryðja sér til rúms á almennum markaði og margir séð í þeim mikla möguleika í kennslustofunni, en notkun slíkra tækja hefur þó ekki verið reynd í skólum landsins fyrr en nú eftir því sem við best þekkjum til... (sjá nánar)

Uppflettisíður:

 

©2011 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400
skolavefurinn@skolavefurinn.is

Prentsmiðja Skólavefsins







 

 

islensk_stafsetning staerdfraediskyringar staerdfraedikennarinn ensk_malfraedi donsk_malfraedi