|
Um ljóðið
Hörpusláttur
er fyrsta ljóðið í fyrstu ljóðabók
Matthíasar, ,,Borgin hló” sem kom út árið 1958.
Mun það hafa verið tillaga frá Steini
Steinarr að bókin skyldi hefjast á þessu
ljóði, en þeim Steini og Matthíasi
var vel til vina. Í ljóðinu kemur fram ást
Matthíasar á höfuðborginni, enda borinn
og barnfæddur Reykvíkingur. Í ljóðinu
lítur höfundurinn tilbaka þegar hann var
ungur og saklaus eins og sjálf Betlehemsstjarnan.
|