Allar hljóðbækur
Ást og auður
Skáldsögur á íslensku

Ást og auður

Jóhann Gunnar Sigurðsson

Ást og auður er stutt örlagasaga í 11 köflum, oft átakanleg. Segir þar frá stúlkunni Sigríði, bóndanum Gísla sem ann henni hugástum og kaupmanninum Þórarni sem giftist henni. Sagan minnir stundum á Kærleiksheimilið eftir Gest Pálsson. Hún telst þó ekki til raunsæis heldur nýrómantíkur, en skilin eru ekki mjög skörp. Það sem kannski helst gerir söguna jafn góða og skemmtilega aflestrar og raun ber vitni er einlægnin og ákefðin sem býr að baki. Það er eins og maður finni samkennd höfundar með sögupersónunum og það að hér er skrifað af sárri reynslu, þess sem átt hefur en misst. Þá er ljóðrænn textinn seiðandi og myndmálið oft á tíðum forvitnilegt.

Kaflar

Skráðu þig inn til að hlusta

Hljóðbækur eru aðeins aðgengilegar áskrifendum Skólavefsins. Skráðu þig inn eða gerstu áskrifandi til að hefja hlustun.